Vikan - 01.12.1996, Side 62
HVADSEGJA
UMHG?
- eða orkusvið þitt, áhugamál og lífsmynstur? Hvaða áhugamál henta þér, núna þegar
best er að nýta skammdegið til að Isera eitthvað nýtt og spennandi? Tungumálanám-
skeið, íþróttir, kórsöngur, matreiðsla, myndlistarnámskeið eða sálfrseði, allt eru þetta
nokkrir af þeim fjölmörgum möguleikum, sem vert vseri að kynna sér, en hvern eettir
þú að veljja? Öll erum við fædd með ákveðin orkumynstur eða orkusvið sem endur-
spegla á einn eða annan hátt það stjjörnumerki sem við fæðumst i. Stjörnurnar geta
nefnilega sagt okkur til um það hvernig hæfileikum okkar sé best varið.
HRÚTUR
21. mars-20. apríl
Þú ert kraftmikil og dugleg
manneskja og þaö verður alltaf eitt-
hvað að vera að gerast í kringum þig.
Þú ert þannig persóna sem hellir sér
yfirleitt af krafti í hlutina. Gættu að
skapinu því þú ert stjórnsöm keppnis-
manneskja. Ef þú sigrar ekki veröurðu
sár. Skíði eru eitt af stóru áhugamálun-
um þínum og flestir Hrútar fá útrás í
þeirri íþrótt vegna útiveru og ferðalaga
sem henni fylgja, auk alls fólksins sem
þeir hitta. Hrútar þarfnast útsýnis og
pláss og þeir þrífast alltaf best á toppn-
um, bæði í vinnu og í leik. Hafirðu
áhuga á að nota löng vetrarkvöld til aö
auka almenna þekkingu þina ættirðu
að demba þér út í að stúdera
fög á borð við sálfræði,
lögfræði og tungumál.
En þú vilt helst
nota tímann vel
í eitthvaö
uppbyggj-
andi, eitt-
hvað
styrkir þig í vinnunni eða kemur þér í
gang á nýjum vettvangi. Hrútum geng-
ur glimrandi vel í pólitík og eru ávallt
sannfærandi leiðtogar. Pólitík er því
ekki svo afleitur starfsvettvangur fyrir
Þig-
NAUT
21. apríl-21. mai
Margt tónlistarfólk er fætt í
Nautsmerkinu. Nautið er yfirleitt sterkt
og ákveðið en það á sér einnig mjúkar
tilfinningahliðar. Naut hafa góðan
smekk og þeim er einkar lagið aö líta
alltaf á björtu hliðarnar. Ef þú ert Naut
þá er ekki ólíklegt aö tónlist, leikrit,
óperur, ballet eða kvikmyndir eigi eftir
að leika stórt hlut-
verk í þínu
lífi. Þú
átt eflaust eftir að eyða mörgum helg-
um á listasöfnum og i galleríum og
nýta kvöldin I leiklistarnámskeið eða til
að syngja í kór. Naut kunna að njóta
lífsins og góður matur og úrvalsvín
gefa lífinu nauðsynlegt gildi í þeirra
augum. En það er annað, sem heillar
sum Naut meira en menning og listir,
nefnilega peningar. Ef þú ert í þeim
flokki henta bókhaldsnámskeið og eitt-
hvað í þeim dúr, sem hefur með tölur
að gera, vel fyrir þig.
TVÍBURAR
22. maí-21. júní
Tvíburarnir eru þekktir fyrir að
vera líflegir og taka hlutunum létt. Þeir
vita pinulítið |tm alla hluti en hafa
sjaldnast þolinmæði til að sökkva sér
djúpt í eitthvað. Tvíburar vilja fá mikið
út úr lífinu og tilverunni. Ef þú ert Tví-
buri þá vilt þú örugglega læra tungu-
mál til að geta spjallað við útlendinga.
Þannig væri tungumálanámskeiö
upplagt vetrartómstundagaman
fyrir þig. Skriftir og bókmenntir
heilla einnig marga sem
fæddir eru í Tvíburamerk-
inu. Þar sem þú ert lestrar-
hestur ættirðu ekki að
hika við það að fara út í
eitthvað nám, en það
verður helst að vera
eitthvað sem þú sérö
fyrir endann á, annars
missirðu fljótt þolin-
mæðina. Tviburar eru
flinkir í höndunum,
sauma t.d. sjálfir fötin
sín. Þeir hugsa vel um
heilsuna og nota vet-
urinn gjarnan til aö
koma sér góða þjálfun
meö því að stunda tenn-
is eða badminton og end-
urskoöa mataræðið.
KRABBI
2. júnl-22. júlí
__í þú ert félagsvera þá
örugglega Krabbi. Og þú hefur
um margt aö velja þegar áhugamál
eru annars vegar. Krabbar safna gjarn-
an frímerkjum, antíkmunum og glans-
myndum eða geisladiskum með uppá-
haldstónlistarmönnum sínum. Ef ekki
TEXTI: BRYNDIS HOLM
þá eru þeir vafalítið á Intemetinu.
Þannig kjósa þeir að rækta tengslin viö
aðra, heima í eigin stofu þar sem þeim
líður oftast best. En sumir Krabbar
verða stöðugt að vera á hreyfingu. Ef
þú ert þannig, af hverju ekki að drífa
sig í dans, á tónleika eða í leikhús?
Fólk í þessu stjörnumerki er afar barn-
gott og saga er fag sem hentar því vel,
t.d. forn-egypsk saga og ættfræði. Ef
þú hefur á annað borð áhuga á ein-
hverri íþrótt þá á sund vel við þig þvi
Krabbinn er jú vatnsmerki. Elda-
mennska er eitt af þínum stærstu
áhugamálum. Eldhúsið er sko þinn
heimavöllur og þú safnar örugglega
uppskriftum og kökubókum. Hvernig
væri að fara á matreiöslunámskeið?
?UÓN
23. júlí-23. ágúst
Ljón eru sólskinsverur og í
vetrarfríinu kjósa þau að fara á heita
staði. Ljónin nýta skammdegið vel til
að rækta vini og ættingja og fara á
menningaruppákomur af ýmsu tagi.
Fólk í þessu stjörnumerki elskar föt og
getur eytt mörgum klukkustundum í
búðaráp. Það hefur sýnt sig aö Ljón
hafa mikla sköpunargáfu. Það leynist
því málari í þér eða leikari en þú veist
kannski ekki af því. Metnaðargjöm
Ljón sækja í fög á borð við stjórnun,
markaðsfræði og fjölmiðlafræði. Þenkj-
andi Ljón fá innblástur í háskólanámi
þar sem lífsspekin sjálf er meginþema.
Ljón hafa yfirleitt áhuga á íþróttum. Ef
þau vilja koma sér í gott form verða
þau að skrá sig á ákveðin námskeið til
að fylgja því eftir. Tennis er góð íþrótt
fyrir fólk í þessu stjörnumerki, einnig
hestamennska sem gefur því færi á að
vera úti í náttúrunni. Svo hefur þú
kannski líka áhuga á allt öörum hugð-
arefnum, t.d stjörnufræði. Það væri því
ekki úr vegi að skrá sig á námskeiö af
því tagi því þar gæti nýr heimur opnast
fyrir þér.
MEYJA
24. ágúst-23. september
Heilbrigöi og hreinlæti eru
þeim, sem fæddir eru í Meyjarmerkinu,
afar mikilvæg. Þeir halda húðinni, hár-
inu og líkamanum vel við með hreyf-