Vikan - 23.07.1998, Síða 35
sálfræðiaðstoðar og náði að
vinna úr reiðinni. En mikið
var þetta skemmtileg nótt
þarna í garðinum!”
HÓTAÐIMORÐI OG
BEYGLAÐIBÍLINN
„Maðurinn minn var við
vinnu úti á landi og þangað
hafði ég heimsótt hann með
börnin. Hjónabandið hafði
ekki gengið vel í fjöldamörg
ár. Allt sem hann gerði fór í
taugarnar á mér. Ég hafði oft
hugleitt að sækja um skilnað
en treysti mér ekki til að
verða einstæð móðir. Ég
hafði aldrei unnið úti og sá
ekki fram á að ég gæti séð
okkur farborða. Af tvennu
illu kaus ég því heldur að búa
áfram í óhamingjusömu
hjónabandi. Það var hann
sem tók af skarið, leigði sér
íbúð úti í bæ, hringdi í mig og
sagðist vera búinn að vera
með annarri konu í nokkra
mánuði. Mér fannst veröldin
hrynja. Öllu öryggi var kippt
undan fótunum á mér og það
eina sem komst að var að
drepa bæði hann og konuna.
Ég, sem hafði aldrei drepið
flugu! Ég fór um miðja nótt
að húsinu sem þau bjuggu í
og sparkaði þar í hurðir og
glugga, því ég vissi ekki í
hvaða íbúð þau voru, og
fannst ég fá smá útrás. Næstu
nótt á eftir fór ég aftur að
húsinu, en nú skeytti ég ekki
skapi mínu á hurðum og
gluggum, heldur á bílnum
hans. Mér tókst að beygla
hann hressilega... Mér leið
mun betur á eftir en eftir að
hafa hrellt þau með sím-
hringingum um miðjar næt-
ur, morðhótunum og slíku,
fékk ég taugaáfall. Ég dvaldi
á geðdeild í nokkra daga og
síðar var ég undir hand-
leiðslu sérfræðinga. Mér líð-
ur vel núna og skil ekki að
konan sem gekk berserks-
gang skuli virkilega hafa ver-
ið ég!”.
/ VERSL UNARLEIÐANGRI
MEÐ VISA KORTIÐ HANS
„Minn gerði sér lítið fyrir
og fór frá okkur á Þorláks-
messu. Ég henti út öllum eig-
um hans á aðfangadagsmorg-
un, klippti gat á eftirlætis
skyrtuna hans - og grét fram
að áramótum. Þá uppgötvaði
ég mér til mikillar gleði að ég
var enn skráð með sama
kreditkort og hann - kort
sem hann þurfti að borga af!
Það voru því dýrðardagar í
janúar þegar ég og börnin
gengum milli verslana og
dressuðum okkur upp. Loks-
ins gat ég keypt mér Max
Mara skóna sem mig hafði
alltaf dreymt um! Við kórón-
uðum hefndaraðgerðina
með dýrðlegum kvöldverði á
Hótel Holti. Svo klippti ég
kortið í sundur og sendi hon-
um í pósti. Ég sá á símanúm-
erabirtinum mínum hvenær
hann hafði fengið reikning-
inn - símhringingar hans til
mín skiptu tugum. Ég naut
þess að taka ekki upp tólið
og sat við kertaljós með
rauðvínsglasið mitt og lét
ánægjuna hríslast um æðarn-
ar.
Nei, ég sé sko ekki eftir
þessu, honum var nær að
fara!”
Efþú hefur lent í einhverj-
um slíkum aðstœðum, sendu
okkur þá bréf merkt:
„ Vikan - Hefndin er sœt”,
Seljavegi 2, 101 Reykjavík”
eða hringdu í síma 515 5690
og gefðu upp nafn þitt og
símanúmer. Nafnleynd heit-
ið!
Lausn krossgátu úr
síðasta blaði
f L u Q f £ R & 1 tJ
R b . / M : • o L Q 1 : ■h 'o I
J V 0 £ t> ■ ./ ■fi u fi ■■ ■£> ./
D c f£ —V T : ■ H fi y LL M í V /f lL
i— U N D • y/ ■ 0 fi N/ í: ■fi /« O p f e> T T
rt R ■ ■ U a e T fi £> ’ ■ í r f \f r
T i tj . / fi fi: fi 'j fi ■ L — t O s
H .r V* £ £ - L 0 ð u- - LL C. L LL
F F I i £1 l í> u M - b M \ » o ! N
R r\ ’JL U- fi f u fi - fi T T u U D
f. V F J fl L L • fi s ft L - L
;; f - T s — / L- 'fi - fi n
fi- £ F C T - }< V* fi 0 - u
s Æ T' — L LL L L \ // i ■ 0 s — C Q
- C / 1 c \ V Y ■J9 u fr — M fi /P -
- / » ■C fi T\ c — L fi n; 1 ’ Ll T
*& T i L £T Q u- P b \ L K ft- r
_ LL M A 4 Á T ; fi 1
Hvaða merki passa best saman?
Sími: 905-2020
66.50 mín
35