Menntamál - 01.08.1935, Side 38
116
MEN NTAMÁJ.
hinar krókóttu leiðir raddanna og ráSa hinar leyndardóms-
fullu gátur hljómanna, þaS er gáfa, sem fæstum er gefin
í vöggugjöf. En hæfileikarnir eru fyrir hendi, og þurfa aÖ
þroskast.
Verkefni söngkennslunnar á aS verSa víStækara en þaö
hefir áSur veriS. Ekki sízt þegar þess er gætt, að aldrei hefir
veriS meira um tóna í heiminum en nú. Útvarpiö er alstaöar,
aS ógleymdum grammófónunum, á heimilunum, kaffihúsun-
um, bíóunum og jafnvel í samgöngutækjunum. ÓvíSa verSa
tónarnir umflúnir. AuðvitaS er þessi tónlist ekki öll jafn göf-
ug. ÞaS þarf ekki aS lýsa því, hve æskilegt þaS er, aS menn
geti greint þá tónlist, sem hefir klassiskt gildi, frá hinni, sem
segja má, a'Ö sé til augnabliks skemmtunar. Þa<5 þýÖir ekkert
fyrir þá, sem stunda tónlist og tónlist unna, aS kvarta og
kveina undan því, aS fólkiS vilji ekki annað en jazz og villi-
mennsku i músik. ÞaS þarf aS hefjast handa. HingaS til
hefir þaS, aS læra á eitthvert hljóSfæri veriS aSalleiöin til
aS menntast í tónlist. Nú er þaS kórsöngurinn og nýjar kennslu-
a8fer8ir, líkar þeirri t. d., sem Fritz Jöde* notar í Þýzkalandi,
sem eiga aS ná til miklu fleiri og gera það betur, ásamt fyrri >
leiðunum. Nótumar, rytminn, melódían, er kennt eftir nýjum
atSferbum — kallaö einu nafni á þýsku Gehörbildung, á dönsku
Hörelære — þannig, að menn greina ekki eingöngu tóna,
heldur einnig byggingu verksins og form, og læra að þekkja
gott frá lélegu.
Nýjar aðferðir við söngkennslu. Venjulega hefir verið byrjaS
á að kenna nóturnar. Augað æfist. Skilningurinn skerpist. Eyrað
verður útundan. Tonika-do-aðferðin fer ekki þessa leiðina. Fyrst
í stað er ekki hugsað um hinar 12 misháu tóntegundir, það má
segja að þær renni saman í eitt. Með höndunum eru gefin merki
* SíÖan þessi grein var rituð hefur borist sú frétt, að Fritz Jöde
hafi verið vikið úr ernibætti sínu við tónlistarháskólann í Berlín. Ekki
er greint frá ástæðunni fyrir þeim brottrekstri, en rannsókn mun veraj 1
hafin á embættisrekstri hans. Jöde er þekktur tónlistarfræðingur og
hinn merkasti frömuður alþýðutónlistarinnar i Þýzkalandi.