Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 14
108
MENNTAMÁL
töldum li/2 tíma um hádegið. Tvö hin síðustu ár hefir þó
ofurlítið verið dregið úr eftirlitinu, þannig að gæzlumað-
urinn hefir dvalið þar skemur daglega, og er það vegna
Vöðsluþróin — siglingapollurinn.
þess, hve mörg börn hafa verð flutt úr bænum þessi
sumur.
Vegna þess hve bærinn er langur, verða það einkum
börn úr norðurhluta bæjarins, sem sækja völlinn, —
þyrfti annan leikvöll fyrir suðurhlutann. Samt sem áður
er fjöldinn oft mikill, einkum í góðu veðri. Má þá stund-
um telja á annað hundrað böm í einu. Vitanlega er oft-
ast færra, sérstaklega þegar kalt er eða blautt, en sjaldan
er svo fátt að ekki skipti nokkrum tugum í einu.
Öll börn mega koma á leikvöllinn, og barnfóstrurnar
sækja hann talsvert með ungbörn í vögnum og kerrum.
Unglingar koma oft, og jafnvel fullorðnir koma stundum
með börnum sínum, og sitja þá mæðurnar með verkefni
í höndum sínum sunnan undir skjólgirðingunni. Börn
mega koma og fara þegar þau vilja, en mörg þeirra eru
mest allan daginn og dag eftir dag. Hafa þau oft með