Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 47
MENNTAMÁL
141
bændasyni og — dætur á íslandi. Þau hafa eins og aðrir
bókhneigðir unglingar, sem ólust upp á síðari hluta 19.
aldar, lesið fornritin og önnur þau rit, sem þá voru á boð-
stólum.
Þegar þau Magnús og Kristín giftust, bjuggu þau fyrst
í Þingi og Vatnsdal, en um aldamótin fluttu þau að Hurð-
arbaki í Torfalækjarhreppi. Þar bjuggu þau þar til Magn-
ús andaðist árið 1909. En síðan bjó Kristín þar áfram með
börnum sínum.
Heimilið að Hurðarbaki var gott og mjög ánægjulegt.
Hef ég um það frásögn mjög greinargóðs manns, sem til
þekkti.
Foreldrar Kristínar lifðu Magnús, og eftir að Magnús dó,
gerðu þau heimilislífið léttara en ella myndi verið hafa,
því að þau voru bæði afbragðsmanneskjur, greind og glað-
lynd.
Hurðarbak er þannig í sveit sett, að það er afskekkt, en
þangað þótti gott að koma. Fjölskyldan var gestrisin og
greiðug.
Heimilið að Hurðarbaki var fátækt lengi fram eftir bú-
skaparárum Kristínar. Börnin voru sjö og fóstursystir
þeirra að auki, svo að ómegðin var mikil.
Þegar Magnús dó, tóku eldri bræður Eiríks, Jón og Guð-
mundur, við búsforráðum og farnaðist þeim vel. Er þeir
eltust, og systkinin öll komust upp, batnaði hagur heim-
ilisins. Munu þeir bræður hafa eitthvað styrkt Eirík til
náms.
Æska Eiríks Magnússonar og námsferill hans.
Eiríkur Magnússon var fæddur að Hurðarbaki, Torfa-
lækjarhreppi í Austur-Húnavatnssýslu 3. apríl 1904. Það
var 30 árum eftir 1000 ára afmæli fyrsta landnáms á ís-
landi, þegar ísland fékk stjórnarskrá sína og stórum var
slakað á hinu erlenda valdi, sem um margar aldir hafði
haldið íslendingum í fjötrum ófrelsis og harðstjórnar. Það