Menntamál - 01.12.1941, Page 61

Menntamál - 01.12.1941, Page 61
MENNTAMÁL 155 iTeitirnar ern atlivarf bæjanna Reykjavikurböm í sveit. Undanfarin ár hafa ýmis líknar- og menningarfélög í stærztu bæjum landsins unnið að því, að sem flest borgar- börn gætu notið sumardvalar í sveit, annað hvort á barna- heimilum eða sveitabæjum. SíðastliÖið sumar var starf þetta víðtækara en nokkru sinni fyrr, sem aðallega staf- aði af hernáminu og ótta við hernaðaraðgerðir á landi hér. Á öðrum stað í þessu hefti, er skýrt frá starfi sumar- dvalarnefndar á Akureyri. Hér verður skýrt frá störf- um og framkvæmdum sumardvalarnefndar Reykjavíkur. Ritstjóri Menntamála hefur hitt Arngrím Kristjánsson, framkvæmdastjóra nefndarinnar, og fengið hjá honum eftirfarandi upplýsingar: Upphaf málsins er það, að vorið 1940 tókst samvinna milli Barnaverndarráðs fslands og Rauða krossins um að greiða fyrir dv.öl fátækra barna í sveit. Nokkur líknarfélög, sem áður höfðu látið lík mál til sín taka, voru einnig þátt- takendur í samvinnu þessari. Fyrirkomulag var ráðgert með tvennu móti: A. Með því að starfrækja sumardvalarheimili. B. Greiða fyrir dvöl barna á sveitaheimilum, þannig, að í bænum væri starfandi nefnd, sem útvegaði heilbrigð sveitaheimili, og vísaði foreldrum 9—12 ára barna á hollan dvalarstað í sveit, þar sem þau gætu að nokkru leyti unn- ið fyrir sér. Síðari hugmyndina hafði Arngrímur Kristjánsson borið fram við R. Kr.; ennfremur flutti hann erindi um þetta

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.