Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 37
MENNTAMÁL
131
sem úti voru og var hún einnig fest upp á ýmsum stöðum.
Hún var á þessa leið:
„Brezkur herliðsafli er kominn snemma í dag á
herskipum og er núna í borginni. Þessar ráðstafanir
hafa verið gerðar bara til þess að taka sem fyrst
nokkrar stöður og verða á undan Þióðverjum. Við Eng-
lendingar ætlum að gera ekkert á móti íslenzku lands-
stiórninni og íslenzka fólkinu, en við vilium verja
íslandi örlög, sem Danmörk og Norvegur urðu fyrir.
Þessvegna biðjum við yður að fá okkur vinsamlegar
viðtökur og hjálpa okkur. Á meðan við erum að fást
við Þjóðverja, sem eru búsettir í Reykjavík eða ann-
arsstaðar á íslandi, verður um stundarsakir bannað
(1) að útvarpa, að senda símskeyti, að fá símtöl
(2) að koma inn í borgina eða fara út úr henni fyrir
nokkra klukkutíma.
Okkur þykir leiðinlegt að gera þetta ónæði, við biðjum
afsökunar á því og vonum að það endist sem fyrst.
R. P. Sturgis yfirforingi.
Þannig hljóðar þetta skjal og lítur ekki út fyrir, að
góðir íslenzkumenn hafi um það fjallað.
Allan daginn héldu áfram stöðugir liðsflutningar, bæði
um bæinn og út úr honum. Farangur mikill var fluttur í
land, ýmis hús voru hertekin til afnota fyrir herinn, þar
á meðal tveir skólar (síðar flestir skólar bæjarins). Nem-
endur og kennarar voru reknir á dyr og hermenn komu
í staðinn. Litlir herflokkar og einstakir hermenn stóöu
vörð hingað og þangað, einkum framan af deginum. Þegar
á leið var eins og innrásarliðið hefði minni andvara á sér,
hefir líklega þótt einsýnt að ekki væri mikillar her-
mennsku þörf.
Klukkan 10 hófst fundur í ríkisstjórn íslands, og stundu
síðar gekk hinn nýskipaði sendiherra Breta hér á landi.
Mr. Howard Smith, sem komið hafði með herskipunum
um morguninn, á fund hennar. Höfðu Bretar nokkrum
9*