Menntamál - 01.12.1941, Síða 87
MENNTAMÁL
181
um gullúr áletrað, ásamt gullkeðju, forkunnar fagra gjöf til minn-
ingar um langt og heilladrjúgt starf.
Sigmundur Sveinsson,
sem verið hefur umsjónarmaður Miðbæjarskólans í Bvík. um langt
skeið, lét af störfum í haust fyrir aldurs sakir. Stöðuna fékk Guðjón
Jónsson bryti.
Söngmálastjóri,
hinn fyrsti, hefur Sigurður Birkis verið 'skipaður.
Þetta hejti
Menntamála kemur síðar en til var ætlazt. Handrit í heftið voru
komin í prentsmiðjuna 15. nóv. og 1. des. Sökum jólaanna í prent-
smiðjunni var ekkert sett í heftið fyrir nýár. Þá skall á vinnustöðvun
í prentsmiðjunum, sem stóð fram undir miðjan febrúar. Annað hefti
er í undirbúningi og kemur væntanlega út í maí. Þessi árgangur er
12 arkir, eins og til var ætlazt. Hefur nú verið gert efnisyfirlit yfir
3 síðustu árganga og fylgir það þessu hefti.
Námsstjórarnir.
Svo sem getið er í erindi fræðslumálastjórans, sem birt er í þessu
hefti, urðu þessir skólamenn fyrir námsstjóravalinu: Aðalsteinn
Eiríksson í Reykjanesi, Bjarni M. Jónsson í Hafnarfirði, Snorri Sig-
fússon á Akureyri og Stefán Jónsson í Stykkishólmi. Að svo komnu
geta Menntamál ekki sagt fréttir af starfi námsstjóranna. Þeir munu
allir vera nú á ferðalagi um eftirlitssvæði sín. Væntanlega verður hægt
að birta fregnir frá þeim í næsta hefti.
Skólarnir í Reykjavík
hófust í seinna lagi á þessu skólaári, — eða 15. október.
Boðberinn
heitir foreldrablað, sem Akureyrarkennarar gefa út. Menntamál-
um hefur borizt 1. tbl. 10. árg. er út kom fyrir jólin. Kennarar ræða
þar vandamál skóla og heimila, auk þess flytur blaðið fróðleiksmola,
er snerta starfið. Heftið er í stóru broti, prentað, 12 síður, auk kápu.
Það má kallast myndarbragur töluverður af Akureyrarkennurum að
halda úti svo góðu skólamálgagni.