Menntamál - 01.12.1941, Qupperneq 86
180
MÉNNTAMÁL
bóka og talið hana stórt skref í rétta átt. Mun hið sama álit gilda
hjá meginþorra kennarastéttarinnar. En þess er ekki að dyljast, að
margir annmarkar eru enn á útgáfunni og hvergi nærri fyllir hún
þær kröfur, sem sanngjarnt er að gera til hennar. Skulu hér aðeins
nefnd tvö atriði, sem nauðsynlegt er að taka til athugunar. Það er
efnisval og efnismeðferð í bókunum, að hinu leytinu rekstur útgáf-
unnar. — Um fyrra atriðið skal það sagt nú, að ritstj. hafa borist
til eyrna margar óánægjuraddir um hinar ýmsu bækur, almennast
mun kvartað út af biblíusögunum, en auk þess heilsufræði, málfræði,
reikningsbókum o. fl. Nú hefur ritstj. sagt við nokkra af kennurum,
sem við hann hafa rætt: Skrifið stutta rökstudda dóma um bæk-
urnar, látið athugasemdir ykkar koma fram í Menntamálum.
Þá verður það að teljast mjög bagalegt, að útgáfubækurnar skuli
hafa verið af skornum skammti síðustu misserin. Hafa sumir kenn-
arar orðið að breyta áætlun sinni í kennslunni sökum skorts á ein-
stökum bókum. Útgáfukostnaður hefur að vísu aukizt gífurlega og
ríkisútgáfan á yfir takmörkuðu fé að ráða, en þetta má þó ekki
hefta nauðsynlega útgáfu nýrra bóka og endurprentanir annarra.
Kennarar verða að stuðla að því, með skynsmlegum ráðum og rök-
um, að útgáfa skólabókanna samsvari fyllztu þörfum. Það getur ekki
talist vansalaust, að ríkisútgáfa skólabóka dragi saman seglin á
þessum veltiárum, þegar bókaútgáfa á íslandi hefur farið fram úr
öllum eldri metum. Með einhverjum ráðum verður að efla gengi
þessarar gagnlegu útgáfu. Starf hennar stendur til bóta, ef vel er
á haldið.
Frá Kennaraskólanum.
Breyting á kennaraliði skólans hefur orðið sú, að Ármann Hall-
dórsson hefur látið af störfum. Var hann settur skólastjóri Miðbæjar-
skólans. í stað hans hefur dr. Broddi Jóhannesson verið settur. —
Marteinn Guðmundsson hætti kennslu sem teiknikennari, en í hans
stað kennir Kurt Zier teikningu í vetur. K. Z. er einnig kennari
Handíðaskólans. — Helgi Tryggvason kennir í stað Steingríms Ara-
sonar, sem dvelur í Ameríku. í I. bekk settust 21 nemendur, í II. bekk
27 og í III. 32, þar af einn stúdent.
Hallgrímur Jónsson heiðraður.
Hallgrímur Jónsson hefur starfað við Miðbæjarskóla Reykjavíkur
um 36 ára skeið, fyrst sem kennari, þá yfirkennari og loks skóla-
stjóri frá 1936. Nokkru eftir að Hallgrímur lét af störfum sem skóla-
stjóri í haust, færði starfsfólk og kennarar Miðbæjarskólans hon-