Menntamál - 01.12.1941, Side 24
118
MENNTAMÁL
litsleiðangur innan skamms, en Stefán Jónsson getur ekki
hafið starf sitt fyrr en eftir nýár. —
Áður hefur lítillega verið minnst á störf námsstjóranna
eða eftirlitsmannanna. Nú skal drepið á þau nokkru nánar.
Verkefni þeirra verða einkum þessi:
1. Að athuga hvort gildandi lögum og fyrirmælum
fræðslumálastjórnar sé framfylgt, og hvort þau séu vel
við hæfi þeirrar hugsjónar, sem keppt er eftir með skóla-
haldinu og hennar ytri aðstæðna, sem skólarnir eiga við
að búa.
2. Að kynna sér starfsskilyrði kennara, aðbúð þeirra
og barnanna, aðstæður til náms og þroska og árangur
kennslu, með það fyrir augum, að ráðnar verði bætur á
því, sem áfátt kynni að reynast.
3. Að kynna sér aga, stjórn og uppeldisáhrif skóla og
heimila eftir föngum, hversu mikið samstarf er þeirra
í milli og með hverjum hætti það mætti verða sem af-
farasælast.
4. Að leiðbeina kennurum, skólanefndum og aðstand-
endum barna um réttindi þeirra og skyldur og um allt
það, er verða má börnunum til aukins manngildis og bætts
árangurs af skóladvölinni.
5. Að athuga og gera tillögur um sameining skóla-
hverfa, samstarfs smærri skóla og vinna að hagkvæm-
um breytingum á skipun og framkvæmd skólahalds og
menningarstarfsemi — frá sjónarmiði uppeldis- og
fræðslu- og fjármála.
En auðvitað kemur fjölda margt fleira til greina en
það, er nú var nefnt. Reynslan ein kennir smám sam-
an, hversu margþætt og víðtækt starf námsstjóranna
kann að verða. En skólanefndir og kennarar geta mjög
stutt þá í starfi. Þess vegna skiptir svo miklu máli, að
þessir aðilar hafi góðan skilning á starfi námsstjóranna.
Þeir eru ekki settir skólanefndum og kennurum til höfuðs,
heldur til hjálpar. Auðvitað benda þeir á misfellur, þar