Menntamál - 01.12.1941, Side 52

Menntamál - 01.12.1941, Side 52
146 MENNTAMÁL hann svo mikinn áhuga hjá unglingunum, að þeir báöu hann að lofa sér að starfa saman undir handleiðslu hans og með honum. Hann varð við bæn þeirra og stofnaði með þeim ungmennafélag. Og félagið starfaði af áhuga. Allt- af var Eiríkur boðinn og búinn til félagsstarfsins, og það eftir að mjög fór að bera á lasleika hans þeim, sem síðar varð honum ofjarl. Ég sagði einu sinni við Eirík: „Heldurðu að þú þolir að bæta félagsstarfinu á þig? Viltu ekki að minnsta kosti fá einhvern til að taka þátt í starfinu með þér og leysa þig frá nokkrum hluta þess?“ „Nei,“ sagði Eiríkur, „ég verð að gera það sjálfur. Ég er að greiða gamla skuld, sem eng- inn getur greitt fyrir mig“, bætti hann við og brosti hlýtt og sannfærandi. Ég varð niðurlútur og fyrirvarð mig. Hve marga slíka reikninga skyldi ég þá eiga eftir að greiða? Þessar skuldir mínar hlaut ég ýmist að hafa látið sökkva í hyl gleymsk- unnar eða þá að skortur á skyldurækni og hugkvæmni höfðu varnað mér þess að gera tilraun til að greiða þær. Heimsborgari, hugsjónamaður og trúmaður. Eiríkur Magnússon var að vísu fæddur í Húnaþingi á íslandi. En þrátt fyrir það var hann í raun og veru lítið fremur íslendingur en Breti, Rússi eða Þjóðverji. Hann talaði kjarnmikla íslenzku með smekklegri setningaskipan, en hann hugsaði á máli allra kynkvísla og þjóða. Andleg vakning og viðreisnarbarátta í Kína og Ástral- íu gat snortið hann eldmóði, eins og hann væri einn þeirra, sem áttu að njóta ávaxta bættra menningarkjara í Kína eða Ástralíu. Ég man ávalt eftir fögnuði Eiríks, þegar það frétt- ist, að 8 stunda vinnudagur hefði verið leiddur í lög fyrir franska verkamenn. Fögnuður hans var einlægur og ákaf- ur. Þegar hann ræddi við mig um þennan stórkostlega sigur menningarmálanna í heiminum, lét ég í Ijós álit um það, að óvíst væri, að takast mundi nokkru sinni að

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.