Menntamál - 01.12.1941, Page 43

Menntamál - 01.12.1941, Page 43
MENNTAMÁL 137 Jóii Sigai'ðsson: Mlimliigf Eiríki^ Magnii^sonar Was wdre dein Gliick, wenn du nicht die hattest, welchen du leuchtest! Nietzsche. Fórnarlundin. Hinn 9. sept. s. 1. andaðist Eiríkur Magnússon kennari. Við fráfall Eiríks er óbætt skarð í fylkingu beztu sona íslenzku þjóðarinnar. Hann var slikt ljós mannlegs per- sónuleika, að hverjum manni, sem þekkti hann, hlaut að finnast skyggja að, þegar hann kvaddi. Þegar ég nú hugsa um Ei- rík, um langa viðkynningu og síðar samstarfið með honum, þá verður mér að spyrja: Hvað var ríkast í eðli hans? Svarið er ekki auðfund- ið, því að Eiríkur var óvenju fjölþættur maður, og hann lifði næmu andlegu lífi, svo að fátt andlegra mála, hvort sem var hér á landi eða út um lönd, var honum óviðkomandi. Hann þjáðist með hinum þjáðu og hryggðist með þeim, sem hryggir voru. En hann gladdist líka af einlægum huga yfir því, sem vel gekk og studdi að heill alþjóðar og framgangi þeirra mála, sem hann bar mest fyrir brjósti. Og það var margt, sem Eiríkur Magnússon bar fyrir Eirikur Magnússon

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.