Menntamál - 01.12.1941, Page 44

Menntamál - 01.12.1941, Page 44
138 MENNTAMÁL brjósti. Hann taldi sjálfan sig mann hins nýja tíma og hann var maður nýrra hugsjóna og allra nýrra fram- kvæmda, sem leitt gætu til aukinnar farsældar landi og lýð. Hann hafði brennandi áhuga á öllum þeim nýjungum í þjóðfélagsmálum, sem hann áleit, að væru til bóta og veittu hverjum einstakling réttláta hlutdeild í þeim gæðum, sem þjóðfélagið hefur fram að bjóða. En Eiríkur var strangur við sjálfan sig og aðra, sem hann hafði afskipti af. Hann skrifar á einum stað:*) „— Því að sá, sem ekki gerir kröfur til sjálfs sin um vöxt og markvíst sjálfsuppeldi, stendur illa að vígi að krefjast þroskaskilyrða af öðrum.“ Og kröfur Eiríks náðu ekki aðeins til einstaklingsins sjálfs, en hann var ávallt vandlátur um framkvæmdir þess málstaðar, sem hann barðist fyrir. „Og í sjálfs þíns brjósti bundnar blunda raddir náttúrunnar“ segir Grímur Thomsen. Þessi orð eru látlaus, og að því er virðist almenn, og auð- vitað eiga þau að miklu leyti við um hvern mann, en Eirík- ur var einn þeirra fáu, sem þau áttu við með réttu og voru sannmæli um. Eiríkur var heill í eðli sínu, og hann var svo nátengdur lífinu, að ég hef fáa menn þekkt slíka. Mér finnst allar taugar mannlegs lífs og lifandi náttúrunnar eiga rætur í vitund hans og eðli. Það má vera, að ýmsum samferðamönnum Eiríks finn- ist hér of mikið sagt. Og gáfaðan mann hef ég rætt við um Eirík, sem þekkti hann vel um skeið, sem' fannst Ei- ríkur furðu ofstækisfullur á köflum og skoðanir hans á sumum málum einstrengingslegar. En að öðru leyti fóru skoðanir okkar um Eirík mjög saman. Ég held, að þessi menntamaður hafi sjálfur dæmt Eirík of einstrengingslega og ekki tekið tillit til þeirrar aðstöðu, ) „Til þeirra sem ungir eru“. Rauðir pennar 1936.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.