Menntamál - 01.12.1941, Side 59
MENNTAMÁL
153
að sýna. Það leyndi sér ekki, að nóg væru verkefnin, bæði
fyrir hvert einstakt barn, og fyrir þau öll sameiginlega.
í sumar dvaldi flokkur skátadi’engja með foringja sín-
um að Úlfljótsvatni í Grímsnesi. Drengirnir voru á aldrin-
um 9—16 ára. Þeir lærðu að sjá um sig sjálfir að öllu
leyti, veiddu silung til matar og stunduðu auk þess garð-
rækt og heyskap. Kaffi og tóbak var ekki haft um hönd
og hinum ítrustu heilbrigðisreglum fylgt. Drengirnir, sem
þarna dvöldu, minnast þessarar sumardvalar sem hins
ánægjulegasta tíma, og ýmsir aðstandenda þeirra telja
áhrifin á drengina hafa verið hin blessunarríkustu. Sum-
arstöðvar fyrir stálpuð börn, þar sem sameinuð væri vinna
og uppeldisáhrif, þyrftu að komast upp víða um land.
Skátahöfðinginn, dr. Helgi Tómasson, hefur gengist fyrir
að útvega kvikmyndir til sýninga fyrir skátafélögin. Lánar
Nýja Bíó í Reykjavík hús sitt ókeypis til þessara sýninga
við og við. Öllum kennurum ætti að vera það ljóst, hversu
þýðingarmikið þetta mál er, þar eð hingað kemur jafnan
mjög lítið af heppilegum unglingamyndum. Hefði það í
raun og veru verið mjög vel til fallið, að kennarasamband
og fræðslumálastjórn landsins hefði átt frumkvæðið í þessu
máli. Nú hefur annar aðili riðið á vaðið og orðið fyrri til,
en þá er að veita aðstoð sína til þess að hrinda málinu
áfram. Góðar myndir eru dýrar og erfitt að fá heppileg
sambönd, en ef þær eru hingað komnar þyrfti að sjá til
þess, að sem flest börn um land allt fengju að sjá þær.
Einnig hér er því nauðsynleg samvinna skátafélaganna
og framkvæmdarstjórnar fræðslumála landsins.
Þá hafa skátafélögin í Reykjavík tekið upp skoðunar-
ferðir til ýmissa stofnana. Hafa skátarnir nú þegar skoðað
ýmis hús og stofnanir og haft af því bæði fræðslu og gam-
an. Ættu kennarar ekki sízt að vera vel fallnir til þess að
hafa forustu í slíkum ferðalögum og skoðunarferðum, enda
væri ekki nema eðlilegt að farið væri með efstu bekki