Menntamál - 01.12.1941, Qupperneq 64
158
MENNTAMÁL
Arngr. Kristjánsson hafði að mestu framkvæmd fyrir
nefndarinnar hönd við undirbúning, en skrifstofustjóri
var ráðinn Gísli Jónasson yfirkennari. Samkvæmt upplýs-
ingum frá skrifstofustjóranum eru eftirfarandi tölur um
ráðstöfun barna á vegum nefndarinnar og kostnaður:
Á 13 barnaheimilum samtals 625 börn, flest 5—10 ára.
Á 9 mæðraheimilum samtals 165 börn (ungbörn með mæðr-
um sínum). Á sveitaheimilum, ráðstafað af nefndinni
684 börn. Alls samtals 1474 börn að öllu leyti.
Auk þess rúmlega 1000 börn styrkt til fatakaupa og flutt
ókeypis.
Innkomið fé:
Samskot ................... kr. 60.000,00
Meðlög aðstandenda........ — 63.000,00
Bæjarstyrkur ............... — 150.000,00
Ríkisstyrkur................ — 150.000,00
Alls kr. 423.000,00
Þessu fé var varið til þess að standast straum af húsa-
leigu, flutningum, fatagjöfum, fæði og kaupgjaldi.
Ritstj.
Sninardvol Akureyrai'barna.
Vorið 1941 kusu ýms félög og stofnanir á Akureyri, að
tilhlutun barnaverndarnefndar, sérstaka nefnd til að
vinna að því, að útvega dvalarstaði í sveit fyrir börn úr
bænum yfir sumarið. Nefndina skipuðu: Ungfrú Krist-
björg Jónatansdóttir frá verkakvennafélaginu „Eining“,
frú Jónheiður Eggerz frá kvenfélaginu „Framtíðin“, Guð-
björn Björnsson frá Oddfellowstúkunni „Sjöfn“, Jakob
Karlsson frá bæjarstjórn Akureyrar, Baldvin Ryel frá
Rauða krossi Akureyrar, Helgi Ólafsson frá barnaverndar-