Menntamál - 01.12.1941, Side 71

Menntamál - 01.12.1941, Side 71
MENNTAMÁL 165 Þótt margt og mikið sé eftir óunnið í launamálum stétt- arinnar, þá eru þessar kjarabætur óneitanlega áfangi á réttarbótaleiðinni, jafnvel sá stærsti síðan 1919, er launa- lögin gengu í gildi. En þau lög voru til stórra hagsbóta fyrir kennara, frá því sem áður var. Frá 1919 og þangað til nú, hafa þær einar réttarbætur áunnist, að 1930 hækkuðu laun farkennara um kr. 200,00. og 1933 var upptekin sú regla, að kennarar misstu ekki áunnin réttindi til aldurs- uppbóta, þótt þeir flyttust milli skólaflokka. Það var mjög þýðingar mikið atriði og til stórra hagsbóta. Hitt get ég aftur á móti ekki talið beinar kjarabætur, er starfstími kennara var lengdur með nýju fræðslulögunum 1936, og þeir fengu þess vegna hærri árslaun. Það voru miklu frem- ur atvinnubætur. Hækkunin á árslaunum stafaði af lengri starfstíma. Laun á hvern starfsmánuð voru þau sömu og áður. Það er engum blöðum um það að fletta, að kennarar eru verst launaðir af öllum föstum starfsmönnum ríkis- ins. Það lítur því ekki út fyrir. að þióðfélagið hafi háar hug- myndir um þýðingu og nauðsyn kennarastarfsins. Það er því næsta einkennilegt, að þegar vandamál steðja að, og hætta virðist vofa yfir æskunni í landinu, að þá skuli vera hrónað hátt á kennarana til hiálpar. Þá eiga þeir að vera stoð og stytta heimilanna við að ala upd börnin. Þá eiga þeir að móta skangereð hinnar unpvaxandi kvnslóðar. Þá er enginn efi á því að skóiarnir hafi mikil og varanleg áhrif á æskulýðinn. Þá virðist velferð þjóðarinnar hvíla á starfi kennaranna. En þegar kennarar fara á sama tíma fram á launahækk- anir, svo að þeir ekki hafi lægri laun en þeir, sem reka tappa í brennivínsflöskur Áfengisverzlunarinnar, þá dofn- ar skyndilega áhuginn fyrir kennarastéttinni. Þá er allt í einu farið að tala um útgjöid ríkisins til menntamála. Þá er uppeldi æskulýðsins orðið verðlítið. Þá er óþarfi fyr- ir kennara að fá sumarfrí með launum. Þá er starfið ekki

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.