Menntamál - 01.12.1941, Page 84

Menntamál - 01.12.1941, Page 84
178 MENNTAMÁL ið mjög þýðingarmikið fyrir þjóðfélagið, og launa kennara sína svo vel, að þeir þurfa ekki að nota sumartímann til þess að leita sér að atvinnu, svo að þeir fái örlitlar aukatekjur, heldur geti varið sumar- leyfinu til hvíldar og menntunar og aukið þannig þekkingu sína á kennslu og uppeldismálum. Kennarar þar verja sumartímanum til þess að vera á námskeiðum, heimsækja uppeldisstofnanir o. fl. Til dæmis um laun kennara á Norðurlöndum má geta þess, að byrjunar- laun kennara í Gautaborg árið 1938 voru kr. 5500, — en kr. 7100,00 með fullum aldursuppbótum. (Sænskar krónur). Af framangreindu mætti vera Ijóst, að laun barnakennara eru lág, en þó mun tilgangslaust að fara fram á hækkun grunnlauna að svo stöddu, enda vænta kennarar þess, að launalögin verði endurskoöuð og samræmd mjög bráðlega. Reykjavík, 25. febrúar 1941 F.h. Sambands íslenzkra barnakennara. Arngrímur Kristjánsson, Árni Þórðarson, Guömundur í. Guðjónsson, Ingvar Gunnarsson, Jónas B. Jónsson, Ólajur Þ. Kristjánsson, Pálmi Jósefssan. Framanskráð grein er aðalkjarni erindis þess, er launamálanefnd- in sendi til Alþingis í fyrra vetur. En auk þess fylgdi ítarleg greinar- gerð hverjum einstökum kröfulið, sem getið er hér að framan í grein Jónasar B. Jónssonar. Greinargerðin öll var fulllöng til birtingar í þessu hefti. Ritstj.

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.