Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 88

Menntamál - 01.12.1941, Blaðsíða 88
182 MENNTAMÁL Fcreldrafundir. Barnaskóli Akureyrar gekkst fyrir tveimur foreldrafundum dag- ana 11. og 12. nóvember og voru fundirnir haldnir í kirkjukapellunni. Umræðueíni fundarins var: samvinna heimila og skóla og sameig- inleg vandamál þessara stofnana. Snorri Sigfússon skólastjóri var málshefjandi á báðum fundunum. Snorri Sigfússon skólastjóri, sem tekið hefur að sér að sinna námsstjórastörfum og eftirliti með barnafræðslunni milli Vatnsskarðs og Öxarfjarðarheiðar þetta ár, hefur í haust ferðast um og haldið fundi með kennurum og rætt við þá um vetrarstarfið. Sumstaðar hafa einnig skólanefndarmenn tekið þátt í þessum viðræðum. Hefur þá einnig verið rætt um fram- tíðarúrræði dreifbýlisins í fræðslumálunum. Síðar mun svo Sn. S. heimsækja eitthvað af skólunum á þessu svæði. Virðist honum að kennarar fagni mjög þessari nýbreytni og hyggur hann gott til sam- starfs við þá um margskonar endurbætur, því sannleikurinn mun vera sá, að ástand það er nú ríkir víða í dreifbýlinu fer sízt batn- andi, og mun með öllu óviðunandi til frambúðar. Þarf þá vitanlega á mörgum örðugleikum að sigrast og ekki að búast við skjótum á- rangri, en vissulega má vænta mikils af þessu leiðbeiningastarfi er strmdir líða. Frá barnaskóla Akureyrar. Ofurlitlum nýjum þætti hefur nú, í tilraunaskyni, verið bætt inn í móðurmálskennslu barnaskólans á Akureyri. Er það með þeim hætti, að hver árgangur skólans kemur saman tvisvar í mánuði í kirkju- kapellunni, sem skólinn hefur á leigu, og lesa þar upp 3—4 börn úr hverri deild kvæði, sögur, frumsamdar ritgerðir, smá samtöl, kórlestra o. s. frv., og á milli eru sungin ættjarðarljóð. Upplestrarefnið er því nær eingöngu eftir íslenzk skáld og rithöfunda, og segja börnin jafnan eitthvað frá skáldinu um leið. Jafnframt vekja kennarar athygli barn- anna á ýmsu því markverðasta við upplestrarefnið eða höfund þess. Eru þetta því nokkurskonar þjóðlegir bókmenntatímar, jafnframt því, sem þeim er ætlað að skerpa smekk barnanna fyrir réttri og fagurri meðferð málsins, bæði í bundnu og óbundnu máli. En reynslan veröur að skera úr hvað upp af þessu vex. Kennarafélag Eyjafjarðar 10 ára. Hinn 4. okt. s. 1. var Kennarafélag Eyjafjarðar 10 ára. Var það stofn- að haustið 1931 með 17 félögum, en telur nú 38 félaga.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Menntamál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.