Menntamál - 01.10.1949, Page 27

Menntamál - 01.10.1949, Page 27
MENNTAMÁL 85 að gæta þess að fara nógu hægt yfir og hafa undirbúið þau með því að fjalla um áþreifanlega hluti. (Það gegnir öðru máli, að langæskilegast væri, að sá undirbúningur hefði hafizt, löngu áður en börnin komu í skóla.) Þegar valdir eru hlutir til að verzla með, vega, mæla o. s. frv. verður einnig að gæta þess, af hverju börnin hafa daglega kynni og ekki flaska á því að nota úrelt orð og hug- tök, sem orka á þau eins og kringilyrði. Um lestrarkennsluna á hið sama við. Áður en börnin hefja reglulegt lestrarnám, verða þau að hafa fengizt við að móta, lita, skoða myndir og yfirleitt kynnast lögun og gerð fjölmargra hluta. Og nauðsynlegt er að hafa alls konar hjálpargögn tiltækileg, ef það kemur í ljós, að eitt barnanna eða fleiri eiga við einhverja sérstaka lestrar- örðugleika að stríða. Á síðari tímum hafa vreið gerð úr garði fjölmörg hjálpartæki handa börnum, sem erfitt eiga um lestrarnám. Treggáfuðu börnin eru einmitt einn flokk- ur slíkra barna. Sérskólakennarinn getur auðvitað ekki kynnt sér alla hluti, en hann þarf að vita, að til eru hjálpar- tæki, sem miðuð eru við hverja einstaka tegund lestrar- veilu. Hann verður að læra að færa sér í nyt þau gögn, sem til eru í deildinni. Lestrarefni handa sérskólabörnum er, að minnsta kosti að því er Danmörku varðar, mjög viðkvæmt mál. Okkur skortir sárlega lestrarefni við hæfi sérskólabarna, þótt margar bækur, sem gefnar hafa verið út til frjálsrar æf- ingar í lestri handa 1. og 2. bekk almenna skólans, komi okkur að nokkuru gagni. Það, sem við þörfnumst, eru bæk- ur, þar sem efnið er sótt í hið daglega líf, bækur, sem geta gefið börnunum hugmynd um þann heim, sem þau lifa og hrærast í. Einnig er hægt að hafa gagn af fögrum bók- menntum, ef þær eru ritaðar á léttu, venjulegu máli og örvandi og skemmtilegar. Ýmislegt er það, sem börnin verða að læra að lesa, þótt það teljist eigi til bókmennta, svo sem viðvörunarmerki,

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.