Menntamál - 01.10.1949, Side 44
102
MENNTAMÁL
Þingvöllum í það skipti. Samt urðu þeir heillaðir af feg-
urð staðarins.
Fimmtudaginn 7. júlí var lagt af stað til Norðurlands í
stórum bíl. Voru 25 manns í förinni — allt kennarar.
Arngrímur Kristjánsson skólastjóri var fararstjóri.
Fyrstu nóttina var gist á Hólum. Kristján Karlsson skóla-
stjóri annaðist móttökur þar af mikilli prýði. Næsta dag
var haldið til Akureyrar og gist þar 2 nætur. Á laugardag-
inn var farið norður í Mývatnssveit. Bættust þá nokkrir
norðlen/kir kennarar í hópinn. Gestunum var sýnt allt hið
markverðasta á þessari leið. Þótti þeim Mývatnssveitin
fögur og sérkennileg. Þó voru þeir til í hópnum, sem fannst
meira til um Hóla í Hjaltadal.
Á sunnudaginn var svo haldið heimleiðis og komið við
í Reykholti, því að ekki máttu Norðmenn koma svo til ís-
lands að heimsækja ekki Snorra. — Þannig var þessari
ferð lokið á 4 dögum. Ferðin var hin ánægjulegasta. Sól-
skin var þá alltaf fyrir norðan, en dumbungsveður og rign-
ing í Reykjavík. Svo birti upp á mánudaginn. Mátti því
segja að sólskinið elti gestina. Hvarvetna komu kennarar
til móts við ferðamenn, þar sem því varð komið við.
12. júlí bauð fræðslumálastjóri gestunum til hádegis-
verðar í Valhöll að Þingvöllum. Fóru þeir austur í bílum
fræðslumálastjóra og þeirra skólastjóranna Jóns Sigurðs-
sonar og Arngríms Kristjánssonar. Að lokinni máltíð var
gengið um staðinn og gestum sýndir markverðustu sögu-
staðirnir. Veðrið var heiðskírt og fagurt þennan dag, svo
að gestirnir sáu hinn fornfræga sögustað vorn í fegursta
ljósi, sem unnt er að sumarlagi. Þegar gengið var um stað-
inn kom í ljós, að margir gestanna kunnu nokkur skil á
sögu Þingvalla. Höfðu einnig lært norrænu í skóla og les-
ið ýmsar íslendingasögurnar, sem allar eru til á norsku.
Aðeins einn þeirra — fararstjórinn — hafði komið til
Þingvalla áður. Voru þeir mjög hrifnir af staðnum og