Menntamál - 01.10.1949, Blaðsíða 51
MENNTAMÁL
109
organisasjoner, vil vi fra norsk side gjöre hva vi
evner for á beváre og befeste.---------“
Ég vænti þess, að íslen/.kir kennarar séu sammála um
að styrkja einnig á allan hátt þau vináttubönd, sem mynd-
azt hafa við heimsókn þessa, svo að samskipti norskra
kennara og íslenzkra megi aukast, eftir því sem árin líða,
til heilla fyrir þessar frændþjóðir og norræna samvinnu.
Ingimar Jóhannesson.
Kennarasamband Austurlands
gckksl íyrir íiámskeii'ii að Eiðum dagana 10,—17. júlí
Námskeiðið sóttu allmargir barnakennarar ai Austurlandi. Kennt
var á námskeiðinu: íslenzka, skrift, vinnubókagerð og átthagafræði.
Kennslu önnuðust: Friðrik Hjartar, skólastjóri, Guðmundur í. Guð-
jónsson, kennari við Kennaraskóla íslands, Jónas IJ. Jónsson, fræðslu-
fulltrúi, Sigfús Jóelsson. námsstjóri.
Auk þess fluttu þeir Guðmundur' I. Guðjónsson og Jónas B. Jóns-
son erindi um reikningskennslu, en Friðrik Hjartar um íslenzka tungu
á tuttugustu (">ld.
I sambandi við Ieiðbeiningar um vinnubókagerð notaði Jónas 1J.
Jónsson stálþráð og þótti það nýlunda og vel takast.
I lok námsskeiðsins var iarin hópferð að Skjöldólfsstöðum og skoð-
tið mjög athyglisverð handavinnusýning nemenda þar.
Meðan á námskeiðinu stóð, var farið út í Eiðahólma undir leið-
siign Þórarins Þórarinssonar, skólastjóra. Einnig var skoðað liið nýja
íþróttasvæði U .1. A. Er það ntannvirki mikið og vel fyrir komið.
Að loknu námskeiðinu var haldinn aðalfundur Kennarasambands
Austurlands.
Formaður sambandsins Eiður Albertsson, skólastjóri á Fáskrúðs-
lirði, setti fundinn og skýrði frá störfum sambandsins síðastliðið ár.