Menntamál - 01.03.1951, Síða 10

Menntamál - 01.03.1951, Síða 10
2 MENNTAMÁL Karlakórs Reykjavíkur vestur um haf. — Ferðaðist víða um Svíþjóð og flutti eriudi um ísland, á annað hundrað talsins. Var form. fél. ísl. stúdenta í Stokkhólmi 1946—1947 og í stjórn Samfundet Sverige- ísland og ísl. fulltrúi í stjórn Siljan-skólans í Dölum. — 1949 var hann ráðinn skólastjóri Skógaskóla. Ritstj. Samvinna tveggja sýslna. í nýju fræðslulögunum er landinu skipt í gagnfræðahér- uð. Og er þá gert ráð fyrir, að sumar sýslur landsins sam- einist um héraðsgagnfræðaskóla. Eiðaskóli sé t. d. sameig- inlegur fyrir Múlasýslur, Re.ykholtsskóli fyrir Borgarfjörð og Snæfellsnes o. s. frv. Þannig hafi tvær eða fleiri sýslur með sér samvinnu um byggingu skólahúss fyrir gagnfræða- nema. Einn liður í þessari þróun er bygging héraðsgagn- fræðaskóla að Skógum í Austur-Eyjafjallahreppi fyrir Rangárvallasýslu og Vestur-Skaftafellssýslu. Aðdragandi þessa máls er þó lengri og umfangsmeiri en svo, að hægt sé að gera honum nokkur veruleg skil í þessari stuttu frásögn. Það mál verður rannsakað nánar, þegar saga þessa nýstofnaða skóla verður skráð. Þó skal hér getið nokkurra atriða, sem að þessu miða. Raddir hafa verið uppi um það oftar en einu sinni, bæði meðal Rangæinga og Skaptfellinga, að stofna æskulýðsskóla sinn í hvoru héraði. Égminnist þess, að Eyjólfur Guðmundsson frá Hvoli í Mýr- dal sagði mér frá tillögum, sem fram höfðu komið um stofnun héraðsskóla fyrir Vestur-Skaftafellssýslu við Heiðarvötnin í Mýrdal. Ég minnist þess, hve áhugasamur Björgvin sýslumaður Vigfússon á Efra-Hvoli var um fræðslumál Rangárþings. Frá honum komu merkar tillögur um skólastofnun. Þess má einnig geta, að einn af elztu unglingaskólum landsins, sem sé unglingaskólinn í Vík í Mýrdal, sem nú síðustu árin hefur starfað undir forystu séra Jóns Þorvarðarsonar, gerði hlé á starfi sínu, til þess að draga í engu úr aðsókn að hinum nýstofnaða skóla að Skógum. Ennþá eitt dæmi: Þegar Skógaskóli var settur í

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.