Menntamál - 01.03.1951, Blaðsíða 18
10
MENNTAMÁL
stúlkna og matreiðslu. Hún er auk þess ráðskona skólans.
Fimm starfsstúlkur hefur hún sér til aðstoðar við mötu-
neytið. Ein þeirra sér um ræstingu skólans, ræstir alla
almenninga, en nemendur sjá um sín herbergi. Hún að-
stoðar og nemendur við þvott fatnaðar síns. Nemendur
skiptast á um að hjálpa til í borðstofu og eldhúsi, þrír og
þrír saman. Vélamaður gætir ljósavéla og miðstöðvar og
sér um viðgerðir. Einn smiður er hér starfandi. Og bú-
stjóri veitir búinu forstöðu.
Skólareglur eru aðeins þrjár: 1) Góð umgengni, 2) prúð-
mannleg framkoma og B) algert vín- og tóbaksbindindi
innan veggja skólans. Heimilisreglur eru fleiri. T. d. gildir
sú regla, að piltum er alls ekki leyft að koma í herbergi
stúlkna og stúlkum ekki í piltaherbergi. Það er enginn
samgangur á milli íbúðarherbergja pilta og stúlkna.
Starf skólans er í öllum meginatriðum svipað í ár og
það var á fyrsta starfsári, þótt nú sé það fjölþættara. Til
þess að gefa nokkra hugmynd um, hvað hér gerist, skal hér
stuttlega skýrt frá, hvernig starfsskrá venjulegra virkra
daga er útlits.
Klukka 7,30: Nemendur vaktir. — Hringt er gamalli
kirkjuklukku, sem komið er fyrir í anddyri skólans. Klukk-
an hefur geymzt hér, síðan Skógakirkja var lögð niður
(1890) og er eflaust mjög gömul. Nú hefur hún fengið nýtt
hlutverk sem skólabjalla. — Nemendur eiga að búa um og
taka til í herbergjum, opna glugga o. fl. áður en hringt er
öðru sinni.
Klukkan 7,50—7,55: HugveJcja, — Nemendur koma sam-
an á stóra ganginum fyrir framan kennslustofurnar. Þar
er staldrað örlítið við, áður en kennsla hefst, og einn kenn-
aranna hefur eitthvað yfir, annað hvort í bundnu eða
óbundnu máli, eitthvað göfgandi og mannbætandi. Oftast
eru lesin Ijóð.
Klukkan 7,55—8,40: Kennslustund.
Klukkan 8,40—9,00: Morgunverður.