Menntamál - 01.03.1951, Blaðsíða 16
8
MENNTAMÁL
sem gnæfir meira en 1500 m yfir sjávarflöt. Það er spilda
af Eyjafjallajökli. í norðri og norðaustri liggur Skóga-
heiðin, sem hækkar stall af stalli og brún af brún upp að
Mýrdalsjökli. Hún er ágætlega fallin til skíðaferða á vetr-
um og fjallgöngu að sumarlagi. Fjallamenn hafa byggt sér
kofa á Fimmvörðuhálsi, eiðinu, sem tengir Eyjafjalla- og
Mýrdalsjökla. Því miður er sá kofi of fjarlægur (þangað
er ca. 5 klst. gangur) til þess að hægt sé að nota hann sem
skíðaskála fyrir skólann. En í ráði er að reisa skólasel uppi
í heiði, sem samtímis gæti verið skíðaskáli. Sennilega er
hægt að komast á milli jöklanna niður í Þórsmörk, þótt
tæpast sé sú leið greiðfær. 1 7—8 km fjarlægð fyrir austan
skólann spinnur Jökulsá á Sólheimasandi (Fúlilækur) sitt
jakatogaband. Hún fossar þar fram undan skriðjöklin-
um kolmórauð og mannskæð. í austanandvara leggur stund-
um af henni brennisteinsþef út Skógasand alla leið út undir
Skógafoss. Niðri á sandinum er flugvöllur, sem hefur orð
á sér fyrir að vera góður lendingarstaður fyrir litlar flug-
vélar. Á sumrin er hann þó nokkuð notaður.
Aukin ræktun bæði búsins vegna og umhverfisins er
skólanum lífsnauðsynleg. Ætlunin er að halda þeim sið,
sem þegar hófst á fyrsta starfsári skólans, að nemendur
og kennarar vinni að fegrun skólaumhverfisins 2—3 daga
frá því vorprófi er lokið og þar til skóla er slitið. Vorið
1950 gróðursettu nemendur undir leiðsögn kennara 1700
trjáplöntur í dálítinn reit í hlíðinni fyrir ofan skólann.
Landsvæði var girt, og stungin voru niður börð í nágrenn-
inu til þess að hefta uppblástur og fok. Einnig var gerð
dálítil ræktunartilraun á Skógasandi. Allt er þetta á byrj-
unarstigi, en víst væri það þýðingarmikið, ef hægt væri að
nytja sandinn, breyta honum í gróðurland.
Fullyrt er, að umhverfi og aðbúð hafi mikil áhrif á
manninn. Sumir taka svo djúpt í árinni að segja, að þetta
öðru fremur móti ungu kynslóðina og skapi viðhorf henn-
ar til lífsins. Það má vel vera, að svo sé. Og það er satt, að