Menntamál - 01.03.1951, Blaðsíða 55
MENNTAMÁL
47
Hvor stjórnin um sig tilnefni tvo menn í útgáfustjórn.
Útgáfustjórnin ræður ritstjóra.
Útgáfustjórnin gerir áætlun um tilhögun ritsins og fjárhagslega
afkontu jtess, svo nákvæma sem auðið er, og leggur ltana fyrir stjórnir
beggja sambandanna lil samþykktar eigi síðar cn 1. febrúar n. k.
Stjórn S. I. B. ábyrgist 500 skilvísa kaupendur, en stjórn L. S. F. K.
125. Að öðru leyti bera samböndin að jöfnu fjárhagslega ábyrgð á
útgáfu ritsins.
Umræður um endurnýjun samningsins skulu liefjast eigi síðar en
1. desember j>. á.
Arngrímur Kristjánsson Helgi Þorláksson
Frá stjórn S. /. B.
1. Kennaranám.skeið á n/r.sta vori?
Sambandsstjórnin hefur nú til athugunar í samráði við fræðslumála-
stjórn að efna til kennaranámsskeiðs á þessu ári. Ákvarðanir í jtessu
efni — staðsetning, tími og höfuðviðfangsefni — verða tcknar í sam-
ráði við námsstjóra, en tilkynningar sendar kennurum í tæka tíð.
2. Uppeldismálaþing.
Sambandsstjórnin mun boða til uppeldismálajtings á næsta ári. Unt
þessar mundir eru hafnar viðræður á milli stjórnar S. í. B. og stjórn-
ar Landssambands framhaldsskólakennara um samstarf í sambandi
við jtingið, og er |>á ætlunin að höfuðviðfangsefni Jjingsins sé aukin
samvinna milli barnafræðslu- og gagnfræðastigsins.
Beðið um bréfaskipti.
Þýzk kennslukona, Gerda Retnus (25 ára að aldri), Iiefur ritað
Menntamálum og beðið að koma þeint skilaboðum á framfæri, að
hún hafi mikinn hug á J>ví að komast í bréfasamband á ]>ýzktt
við íslenzkan kennara, karl eða konu. Hún kveðst vera kennari við
skóla á hernámssvæði Vesturveldanna í Berlín. Heimilisfang hennar
er: Berlin-Hermsdorf, Rundlingsteig 3.
Frá fræðslumálaslcrifstofunni.
YFIRLIT um fjölda kennara og skólastjóra við barna- og unglinga-
skóla skólaárið 1950—1951, skipt eftir skólaflokkum og kynjum.