Menntamál - 01.03.1951, Side 22

Menntamál - 01.03.1951, Side 22
14 MENNTAMÁL að orði: „Við þurfum að ala upp nýja kynslóð með heitari trú, hreinna siðgæði, meiri kærleika, námfúsari á allan sannan fróðleik og menntun, með meiri virðingu fyrir því, sem fagurt er, gott og háleitt, með meiri mannkostum, dugnaði og drengskap. Þetta er hið fyrsta og æðsta boðorð hvers skóla. Ef við rækjum það, þá mun oss allt annað veit- ast. Þetta er hin sanna undirstaða allrar velferðar bæði í andlegum og líkamlegum efnum.“ Enn þann dag í dag eru þetta orð í tíma töluð. Og þetta munu reynast sígild orð. Menntunarþorsti einstaklings og menning þjóðarinnar eru knúin fram af þrá, sem ýmsar ytri aðstæður geta örvað eða sljógvað. Eitt af merkustu hlutverkum skólanna er að örva og glæða þessa þrá. Skyld- ur skólans eru fleiri, og ég leyfi mér að segja, markverðari, en að uppfylla bókstaf fræðslulaganna. Engu síður er það skylda að sporna við hinum forna hugsunarhætti, sem alla tíð hefur verið dragbítur á andlega menningarviðleitni: að lítilsvirða bókvitið, sem „ekki verður í askana látið“, að þjóna og hampa sjónarmiði nytseminnar, þess sem arð- bært er, á kostnað hins. Sá hugsunarháttur er algengur, að sá skóli, sem skilar mestum sýnilegum árangri, háum prófeinkunnum, áferðarfallegri handavinnu, smíðisgripum og hannyrðum, að sá skóli ræki skyldur sínar bezt og sé mestrar virðingar verður. Ég vil alls ekki gera lítið úr þessum atriðum. Ég tel þetta mjög verðmætt og sjálfsagt að uppfylla þessar kröfur tímans og láta það, sem hagnýtt er og nytsamt bæði í orði og verki, skipa virðulegan sess. En þetta er ekki nóg. Lífið er margþætt, og sá skóli, sem vill búa ungt fólk undir lífið, verður að vera lífrænn. Þar með á ég við, að hann þarf að vera í tengslum við sjálft lífið, ekki aðeins þær hliðar lífsins, sem lúta að matarum- hugsun, heldur og engu síður hinu andlega, ósýnilega, sem lýtur að því, sem við skiljum við fegurðartilfinningu, sóma- tilfinningu og sannleiksást. Skólinn þarf að geta ausið af sem flestum lindum og haft upp á margt að bjóða. Sá skóli,

x

Menntamál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.