Menntamál - 01.03.1951, Page 45
MENNTAMÁL
37
75 ÁRA:
Lárus Bjarnason
FYRRV. SKÓLASTJÓRI.
Fæddur er Lárus að
Prestsbakka á Síðu 1. marz
1876, lauk prófi úr Möðru-
vallaskóla 1902, kennara-
prófi frá Flensborg 1904.
1909—1911 stundaði hann
nám í Kennaraháskólanum
í Kaupmannahöfn, enn
fremur dvaldist hann í
sömu borg veturinn 1925—
1926 og kynnti sér skóla-
mál. Iiann var skólastjóri
barnaskólans í Hafnarfirði
1911—1914, kennari við
Flensborgarskóla 1914-’18,
kennari við Gagnfræða-
skólann (síðar Menntaskól-
ann) á Akureyri 1918-’30, Lárus Bjamason.
síðan kennari við Flens-
borgarskólann eitt ár og skólastjóri þess skóla 1931—1941,
er hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Síðan hefur
hann ávallt stundað kennslu og gerir það enn. Kennslu-
greinar hans hafa jafnan verið stærðfræði og eðlisfræði,
en hann hefur einnig kennt dönsku allmikið.