Menntamál - 01.03.1951, Page 32

Menntamál - 01.03.1951, Page 32
24 MENNTAMÁL Kennsla í eSlisfræði. Þessi fróðlega grein er eftir Th. Christensen námsstjóra (inspektör) í Esbjerg. Birtist hún fyrir tveim árum í hinu danska tímariti skólaeölis- frœðinnar (Tidsskrift for skolefysik). Tel ég tvímælalaust, að hún eigi engu siður erindi til íslenzkra kennara en danskra. Ég er hinum háttvirta höfundi mjög þakklátur fyrii', að hann hefur góðfúslega leyft mér að þýða þessa grein sína eða láta þýða og birta í tímaritinu Menntamál. Dr. phil. Björn K. Þórólfsson skjalavörður hefur að tilmælum mínum þýtt greinina. Kann ég honum beztu þakkir fyrir. Lárus Bjarnason. I. Markmið kennslu í eðlisfræði er — eins og í fleiri námsgreinum skólanna — tvíþætt, sem sé fræðsla og þrosk- un á hæfileikum nemenda til að athuga og hugsa. Ef til vill mega skoðanir skiptast um það, hvor þessara þátta sé meira verður, en frá sjónarmiði þess, er uppeldisáhrifum skal valda, hlýtur að teljast mest vert um þroskun hæfi- leika til athugunar og hugsunar, og það því fremur sem athugun á að vera grundvöllur fræðsluviðtöku í eðlisfræði. Fáar af námsgreinum skólanna gefa svo góð færi á því að æfa athugunargáfu nemenda sem einmitt eðlisfræði. Með óbrotnum og einföldum tilraunum venjast nemendur — leiddir af spurningum kennarans — á nákvæmar og markvísar athuganir. Þessar athuganir verða ásamt reynslu þeirri, er nemendur hafa fyrr fengið í daglegu lífi, sannreyndur grundvöllur, og með nákvæmum lýsing- um verður að gæta þess, að þeir missi hans ekki. Fræðilega er unnið úr sannreyndunum á þann hátt, að nemendur finna eiginleika hluta og fá þekkingu á náttúrulögmálum

x

Menntamál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.