Menntamál - 01.03.1951, Side 17
MENNTAMÁL
9
oft vill það gleymast hve mikið uppeldisgildi einmitt felst
í því að temja sér reglusemi — í orðsins víðtækustu merk-
ingu og snyrtimennsku í umgengni við sitt nánasta um-
hverfi. Þeir, sem það gera, munu einnig bera virðingu fyrir
því, sem fagurt er.
Starfsemi skólans.
Starf heimavistarskóla er í mörgu annars eðlis en heim-
angönguskóla. Það er oft og tíðum bæði erfiðara og ábyrgð-
armeira, en það getur líka, ef vel tekst til, verið mjög
ánægjulegt. En því aðeins getur það náð tilætluðum
árangri, að starfið og heimilislífið sé vel skipulagt, og að
allt starfslið skólans sé samhent og áhugasamt um að inna
hlutverk sitt vel af hendi. Mikið er í húfi.
Skógaskóli hefur enn sem komið er átt því láni að fagna
að hafa góðu starfsmanna- og kennaraliði á að skipa. Það
er vissulega gæfa hvers skóla og þá ekki sízt heimavistar-
skóla.
Skólaárið 1949—1950 störfuðu tveir fastir kennarar við
skólann auk skólastjóra. Það voru Albert Jóhannsson kenn-
ari frá Teigi í Fljótshlíð og Jón Jóhannesson cand. mag.
úr Reykjavík. Þar að auki kenndi séra Sigurður Einars-
son í Holti við skólann sem stundakennari. Aðrir tímakenn-
arar voru: skólastjórafrúin, Britta Gíslason, og ráðskonan,
Gróa Salvarsdóttir. Þá voru 47 nemendur í skólanum.
Skólaárið 1950—1951 eru hér meir en helmingi fleiri
nemendur eins og fyrr greinir. Kennurum var þar af leið-
andi fjölgað. Nú eru hér auk þeirra tveggja föstu kennara,
sem áður eru nefndir, þrír til viðbótar. Þeir eru: William
Möller kennari frá Siglufirði, Þorgeir Einarsson stúdent
frá Hafnarfirði og Snorri Jónsson íþrótta- og handavinnu-
kennari frá Siglufirði. Stundakennarar eru: Frú Britta
Gíslason, sem kennir söng og söngfræði, og Aðalbjörg Sig-
tryggsdóttir húsmæðrakennari, sem kennir handavinnu