Menntamál - 01.03.1951, Side 46
38
MENNTAMÁL
Lárus er ástsæll kennari af nemendum sínum. Ber þar
margt til: hlýtt hjartaþel, einstök umhyggja og vinátta í
garð þeirra ungmenna, sem honum er trúað fyrir, trú-
mennska og vöndun í starfi, enn fremur einhver aðlaðandi
snyrtimennska, eins konar listræn fágun í umgengni við
viðfangsefnin. Það var ekki flaustursverk að leysa reikn-
ingsdæmi eða verkefni í eðlisfræði í kennslustund hjá
Lárusi Bjarnasyni, það bar keim af hátíðlegri athöfn. Þeg-
ar þangað var komið, fannst manni sem hvíslað: „Drag
skó af fótum þér.“ Slík alúð kallar á eitthvað gott í ungum
mönnum. Þess vegna er Lárusar minnzt af þakklátum
hug af þeim, sem átt hafa því láni að fagna að njóta tilsagn-
ar hans. Það er ef til vill sá mesti sigur, sem kennari get-
ur unnið í starfi sínu, að hitta þann streng í brjóstum
nemenda sinna, eins og hitt eru hin ömurlegustu örlög að
hafa kælt þar hlýjar uppsprettur.
Á. H.