Menntamál - 01.03.1951, Qupperneq 53
MENNTAMÁL
45
er hafin í þeim. Áfallinn kostnaður þessara bygginga var 14,7 millj.
króna hinn 1. júlí s. 1. og áætlaður kostnaður 1951 rúmar 4 millj.
Ii. Utan kaupstada:
Kyrjað liefur verið á byggingu 27 skólahúsa, en 3 endurbætt. 13 af
þessum 27 húsum eru þegar fullgerð og 11 að mestu leyti. Starf
er hafið í þeim öllum, þó ýmislegt sú enn ógert í síðari flokkn-
um. 3 skólahús eru skemmra á veg komin. 4 héruð hafa fengið
styrk til kaupa á skólabílum. Áfallinn kostnaður við þessar fram-
kvæmdir var 1. júlí 1950 16,5 millj. kr., en áætlaður kostnaður
1951 um 1,7 milíj. kr.
C. Skólastjórabústaðir:
Síðan 1947 liafa verið byggðir 11 skólastjórabústaðir, 10 eru þeg-
ar fullgerðir, einn í smíðum. Áfallinn kostnaður 1. júlí 1950
kr. 1,6 millj., en áætlaður kostnaður 1951 kr 119 þúsund.
Samanlagður áfallinn kostnaður A, B og C 1947—1950 32,9
millj., en áætlaður kostnaður sömu liða 1951 tæpar 6 millj. króna.
II. GAGNFRÆÐASKÓLAR:
A. í kaupstöðum:
Byggt hefur verið nýtt gagnfræðaskólahús í Reykjavik og bætt
við húsin á Akureyri og ísafirði. í Vestmannaeyjum er nýtt hús
í smíðum. Áfallinn kostnaður þessara liúsa 1. júli 1950 er 7,7
millj. kr., en áætlaður kostnaður 1951 kr 410 þúsund.
B. í sveitum:
Nýtt skólahús hefur verið reist að Skógunt undir Eyjafjöllum. Því
er ekki enn lokið, þótt kcnnsla sé hafin þar fyrir ári. Bætt
hefur verið við skólahúsið að Eiðum og smlðahús reist við Lauga-
skóla. Nýtt skólalnis er í smíðum að Laugarvatni. Nokkur liluti
þess tekinn í notkun á þessu hausti. Áfallinn kostnaður við þess-
ar framkvæmdir var hinn 1. júlí 1950 11,4 millj. kr., en áætlaður
kostnaður 1951 1,3 millj. kr Töluverðar endurbætur hafa farið
fram á eldri liúsum, en kostnaður við það er ekki talinn hér með.
III. HÚSMÆÐRASKÓLAR:
Síðan 1943 hafa verið reist 6 ný skólahús fyrir húsmæðrakólana,
en bætt við tvö hús. Þessar byggingar eru allar nær því fullgerðar
og byrjað að starfa í }>eim öllum. Margt er þó ógert enn. Áfallinn
kostnaður við ]>essar framkvæmdir var 7,5 millj. kr. 1. júlí 1950,
en áætlaður kostnaður 1951 kr. 760 þúsund.