Menntamál - 01.12.1958, Side 103
MENNTAMÁL
155
því, hve skammt er milli upphafs og endis. Barnið sér
árangur verka sinna, án þess að eftirvæntingu þess sé
ofboðið. Verkrænn árangur er barni auðsærri en árang-
ur andlegra starfa. Þetta stafar af því, sem áður er tekið
fram, að þroski til huglægs mats kemur tiltölulega seint
til sögunnar hjá börnum, og hjá vangefnum börnum er
hann ef til vill aldrei fyrir hendi.
Margir munu álíta, að til þess að kennsla þessara barna
beri árangur og geti farið fram á þann hátt, sem þessum
börnum hæfir, þurfi skólarnir að auka við þau kennslu-
tæki, sem fyrir eru. Það virðist, sem margir sjái rétta
braut lokast vegna þessa. Það er að vísu rétt, að skólana
skortir ýmis tæki, en ekki í þeim mæli, að ástæða sé til
að láta hendur í skaut falla. Margir skólar eiga kvik- og
skuggamyndavélar. Þær eru að vísu góðar, en ókostur
þeirra er sá, að nemandinn er óvirkur áhorfandi, meðan
á sýningum stendur. Það hefur aftur þær afleiðingar, að
athygli vangefnu barnanna orkar ekki að fylgjast með og
ávinningurinn verður minni en vænta mætti. Þetta á við,
þegar vélar þessar eru notaðar sem kennslutæki. — Séu
þær notaðar til skemmtunar, gera þær sama gagn hjá van-
gefnum börnum og öðrum. Þau fylgjast naumast eins vel
með söguþræði og greind börn, en gleði þeirra yfir því,
sem þau sjá og skynja, er þeim jafnmikils virði og þótt
hún væri byggð á nákvæmari skoðun og dýpri skilningi.
Þau tæki, sem hentugust eru við kennslu vangefinna
barna, þurfa að miðast við það, að þau bindi börnin við
starf, að þau stuðli að bindingu hugans við verkefnið, létti
starfið eða geri það mögulegt. Tæki eiga aldrei annan til-
gang en þann að auðvelda það að ná ákveðnu marki. Þess
vegna getur það tæki, sem það hefur búið til sjálft, verið
barninu meira virði en hitt, sem því er fengið tilbúið til
notkunar. Með þeim hætti lærir það að bjarga sér á eigin
spýtur og að skilja eðli hlutanna. Skæri eru nauðsynleg
kennslutæki fyrir vangefin börn. Þau æfa handlag og