Menntamál - 01.12.1958, Síða 163
MENNTAMÁL
215
Stjórnarskipti urðu á árinu, og er R. H. Oittinen mennta-
málaráðherra í hinni nýju stjórn. Hefur hann gegnt því
embætti tvisvar áður.
NOREGUR.
Dregið hefur úr húsnæðisskorti skólanna, fjölmargir
nýir skólar hafa verið teknir í notkun og eldri skólar
endurbyggðir. Mest hefur aukningin verið á skyldunáms-
stiginu, enda þörfin þar brýnust. Viðbætur eru þó hvergi
nærri fullnægjandi, og margir framhaldsskólar verða að
hafa síðdegisbekki. Rætt er um launauppbætur til kenn-
ara, sem kenna í þeim deildum.
Kennaraskorturinn er mjög mikill, einkum í gagnfræða-
og menntaskólum og mun fara vaxandi næstu ár. Mestur
er kennaraskorturinn í Norður-Noregi. Nemendafjöldinn
eykst hröðum skrefum. Árið 1955 tóku t. d. 4246 stúdents-
próf en árið 1957 5098. Fleiri kennarar útskrifuðust frá
kennaraskólunum 1957 en nokkru sinni fyrr. Er það að
þakka ýmsum bráðabirgðaráðstöfunum frá hendi stjórn-
arvalda, sem halda verður áfram, þrátt fyrir erfiðar að-
stæður og þrengsli í kennaraskólunum. Bitnar það einkum
á kennslu í verklegum greinum, leikfimi og hljómlist.
Haldin eru námskeið, sem veita kennsluréttindi í föndri,
söng, leikfimi o. fl. Komið var á 7 mánaða námskeiði,
skiptu á 2 sumur, fyrir kennara við hjálparbekki, og lýk-
ur því sumarið 1958.
Skólaárið 1957—1958 voru veittar tæpar 10 milljónir
króna til námsstyrkja, og ná nú styrkirnir til nemenda í
iðnskólum og sérskólum ýmsum, bæði innan lands og utan,
auk nemenda í almennum framhaldsskólum.
Kennaraskipti milli framhaldsskóla í Noregi og á hinum
Norðurlöndunum hafa verið nokkur á árinu, og nemendur
norskra kennaraskóla hafa heimsótt kennaraskóla 1 Dan-