Menntamál - 01.12.1958, Page 166
218
MENNTAMÁIj
árunum 1962—1969 og alls staðar komið á 1972—1973.
Skólahéruðunum er í sjálfsvald sett, hvort þau taka þátt
í hinni umfangsmiklu tilraunastarfsemi, sem fram fer í
sambandi við hið nýja skólakerfi. Yfirleitt fá fræðsluráð
og skólanefndir meiri völd en áður. Þar sem skólahéruð
eru lítil, verða fleiri en eitt að vera saman um skóla.
Námsskrá fyrir 9 ára skólann kom út 1955, en unnið er
að nýjum tillögum um námsskrá o. fl., sem liggja eiga
fyrir þinginu í ársbyrjun 1960 og byggjast á þeirri reynslu,
sem fengizt hefur af tilraunastarfi undanfarinna ára.
Skv. samþykkt þingsins frá 1957 skal stofnsetja upp-
eldisfræðilegan tilraunaskóla í Linköping, samkvæmt lög-
um á síðar að stofna fleiri slíka. Munu þeir létta á til-
raunastarfseminni í almennu skólunum. Kennaraháskólinn
hefur tekið við tilraunastarfi því, sem Uppeldis- og sál-
fræðistofnunin hefur haft með höndum og fengið í því
skyni aukið starfslið. Uppeldisfræðistofnunin hefur nú
einkum það hlutverk að úthluta ríkisstyrk til uppeldis-
og sálfræðilegra rannsókna.
Nemendafjöldi eykst stórum í menntaskólunum, bæði
vegna stærri árganga og einnig vegna þess, að hlutfalls-
lega fleiri stunda nú langskólanám en áður, enda eru sí-
fellt meiri menntakröfur gerðar til starfsmanna ýmiss
konar. Menntaskólunum fjölgaði um 60% frá 1945—1956.
Til að tryggja jafna aðsókn að öllum skólunum, svo að
þeir nýtist til fulls, hefur verið stungið upp á, að þeir
hefðu ákveðin skólahverfi. Mikil þörf er að fá æskilegra
hlutfall milli málastúdenta annars vegar og stúdenta úr
stærðfræði- og náttúrufræðideildum hins vegar, þar sem
of fáir hljóta nú undirbúning undir tækninám og náttúru-
vísindi.
Enn sem fyrr er mikill skortur á skólahúsnæði og víða
bætt úr þörfinni með ýmsum óæskilegum bráðabirgðaráð-
stöfunum. Áætlun hefur verið gerð um að veita 3 milljarða
króna framlag til skólabygginga á árunum 1956—1965.