Menntamál - 01.04.1969, Page 109
MENNTAMÁL 103
gefinn kostur á aðstöðu til framhaldsnáms hér og (eða) er-
lendis, og þeir styrktir til þess.
II.
Bætt verði að miklum mun starfsaðstaða alls verknáms í
landinu.
a) Með auknu húsrými,
b) með bættum tækjakostnaði til fjölbreyttari starfa,
c) komið verði á fót stofnun, sem annist efniskaup og
dreifingu a. m. k. á skyldunámsstigi,
d) skipaðir verði námsstjórar fyrir allt landið.
Alyktun uppeldismálaþings Slfí og LSFK 1969
um. stöðu og hlutverk kennarans.
15. uppeldismálaþing SÍB og LSFK fagnar þeirri yfir-
lýsingu menntamálaráðherra, að stefnt sé að því að leggja
fyrir næsta Alþingi frumvarp að nýjum fræðslulögum. Einn-
ig fyrirhuguðum breytingum á námstilhögun við Kennara-
skóla íslands, þar sem m. a. er stefnt að því, að stúdentspróf
eða hliðstætt nám verði gert að inntökuskilyrði í skólann.
Þingið telur sjálfsagt og eðlilegt að kennarasamtökin séu
höfð í ráðum við undirbúning þessara mála.
í nútímajrjóðfélagi eru síauknar kröfur um menntun al-
mennings. Því er nauðsynlegt að starfandi kennarar eigi
kostá að sækja námskeið í kennslugreinum sínum.
Þær auknu kröfur, sem þjóðfélagið gerir til kennaranna
verður að meta til launa, svo að kennarar beri ekki minna
úr býtum en aðrar stéttir með sambærilega menntun og
ábyrgð í starfi.
Starfsaðstaða kennara þarf stórlega að batna frá því sem
nú er. Þjóðinni er það nauðsyn, að staða kennarans sé í
samræmi við þá miklu ábyrgð sem starfinu fylgir.