Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 10
SYSTKININ í SÓLEY
EFTIR HANNES J. MAGNÚSSON
Niðurlag.
SUMAR Á NÝ.
Það fór eins og ætíð áður, að sumar-
blíðan sigraði harðindin. Hafísinn hélt
til sinna norðlægu heimkynna. Nú urðu
sundin aftur blá og eyjarnar fagurgræn-
ar. Endur og æður byggðu sér hreiður
og öll náttúran titraði af móðurgleði.
Systkinin í Sóley hlökkuðu til að vakna
á hverjum morgni. Loftið ómaði af
fuglasöng og titraði af vængjablaki.
Lognaldan vaggaði sér við ströndina og
lék sér að skeljum og kufungum. Það
var dásamlegt að vera til.
Það stóð eitthvað mikið til í Sóley
þennan dag. Allir voru prúðbúnir, og
litli vélbáturinn þeirra, Svalan, vaggaði
hátignarlega á víkinni. Loks komu þau
hjónin, Halla og Gestur, í sunnudaga-
fötunum sínum niður að litlu bryggj-
unni ásamt börnum sínum. Það hefði
raunar átt að nefna þau fyrst, því að
þau komu hlaupandi á undan, og allir
stigu út í Svöluna, sem var nýmáluð.
Ferðinni var heitið upp á meginland-
ið. Það átti að prófa börnin í dag. Einar
átti meira að segja að taka fullnaðar-
próf, en hin yngri árspróf. Það höfðu
þau gert á hverju vori, þegar þau höfðu
aldur til.
Það var ekki laust við að nokkur
prófkvíði væri í Höllu. Raunar átti hún
ekki að taka próf sjálf. En nú átli það
að koma í ljós hversu góð kennslukona
hún væri. Hún hafði kennt Einari að
öllu leyti undir fullnaðarpróf, og nú vat'
eftir að vita, hvernig hann stæði sig
miðað við aðra jafnaldra sína í sveit-
inni. Einar kveið sjálfur engu.
Það var dálítill spölur upp að kirkju-
staðnum, en þar átti að prófa og prest-
urinn átti að vera prófdómarinn. Þegaf
þangað kom, var þar fyrir alhnargt
fólk, aðallega börn og foreldrar þeirra-
Það átti að prófa tólf börn og þar af
áttu fjögur að taka fullnaðarpróf. Tvetr
drengir og tvær stúlkur.
Þetta var strangur dagur, því að það
átti að prófa í öllum námsgreinunuxn
þennan dag, en þetta var um miðjan mai-
Eldri börnin voru miklu hæglátari og
virðulegri í fasi, enda próf þeirra hátíð-
legra. Það var því ekki viðeigandi að
vera með áflog og læli á slíkum degu
Yngri drengirnir, þar á meðal Svanur,
leyfðu sér aftur léttúðugri framkomu-
Vegna þess að próf eru ekkeit
skemmtilegt umræðuefni, verður slepp1
að mestu að segja frá þeim hér. Það
gekk allt vel og eftir því sem á daginn
leið fækkaði þeim námsgreinum', sem eft-
152 VORIÐ