Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 18

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 18
hann á grynnri mið. Það tókst. Hann synti ofurlítið upp lækinn og faldi sig þar undir bakkanum. Eg þóttist alveg vita hvar hann væri, þótt ég sæi hann ekki, og fór nú að reyna að miða á hann með hendinni. Ég fór með hægri höndina hægt niður í vatnið, svo að hann yrði ekki var við neinar hræringar í vatninu. Þegar ég var kom- inn þangað með hendina, sem ég þóttist vita að fiskurinn lægi, kreppti ég fing- urna snöggt, auðvitað af einskærri til- vijun, en viti menn. Ég náði taki á sil- ungnum rétt framan við eyruggana, og vegna þess, að þetta var enginn stórgrip- ur, veittist mér auðvelt að halda honum föstum og kippa honum á land, og þarna lá nú annar silungurinn í dag, lítil speg- ilfögur bleikja, ofurlítið dökk á kviðn- um eins og títt er um silunga, sem alast upp á þessum slóðum og nefndar eru lækjalontur. Ég var nú heldur hróðugur. En þégar runninn var af mér mesti vígahugurinn, varð mér litið upp í fjallshlíðina og sá nú hvergi kýrnar, sem ég hafði dáðst að fyrir gáfur hingað til í dag. Þær voru sem sé horfnar eitthvað, líklega út á Sund. Þá var eins líklegt að þær bittu kýrnar frá Flugumýri, og það var ómögulegt að sjá fyrir afleiðingar af því. Ég batt því silungana saman með snærisspotta, sem ég hafði í vasanum. Sveitastrákar ganga sem sé alltaf með snæri í vasanum, og hljóp, sem fætur toguðu heim. Ég snaraði silungunum drýgindalega inn til mömmu og bað hana að sjóða þelta í kvöldmatinn. Það var ekki á hverjum degi, sem ég lagði lil mat í búið! Ég sagði henni að bann- settar kýrnar væru horfnar og ég þyrfti að fara að elta þær. Ég fann þær brátt og kom þeim á sinn stað. Vegna þess að farið var að líða á daginn, kom ég með þær heim og skildi þær eftir á mýrinni sunnan við túnið. Þar ætlaði ég að hafa þær það, sem eftir var dagsins. — Nú er að geta þess, að ég stundaði um þessar mundir útgerð á fleiri svið- um. Þar sem lækurinn góði rann gegn- um mýrarnar kom hann að dálitlum stalli niður við Hólmana og myndaði þar lítinn foss. Undir fossinum var, og er, djúpur hylur. Ég hafði orðið var við það, að í þessum hyli voru oft silungar, sömu tegundar og í læknum góða. Ég hafði einn morgun, þegar ég var að reka kvíaærnar niður á Hólmana, komið fyrir litlu færi í þessum hyli. Ég hafði bundið alllöngum seglgarnsspolta við öngul, sem ég átti. Síðan rak ég ll'°' hæLjttiður í bakkanu, batt seglgarnim1 við hælinn og renndi færinu niður 1 hylinn. Nú ætlaði ég að veiða silung með miklu meiri menningarbrag, en taka hann með berum höndunum. Það var hálfgerð villimannaaðferð. Ég beið svo við hylinn nokkra stund og bjóst við að silungarnir myndu bita á samstundis, en það dróst. Ég mátti ekki vera að því að bíða lengi. Ég ®tl- aði bara að vitja um færið næsta rnorg- un, þegar ég ræki ærnar í hagann, síðan á hverjum degi eftir það. Það gat orðið dálagleg veiði í allt sumar, ef ég fengi einn silung á bverjum morgni. Ég gleymdi áðan að geta þess, að <’g 160 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.