Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 21

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 21
NONNI: Nei, þetta var hann Guðmund- ur kennari í jólasveinsfötum. JONNI: Þú platar mig nú ekki. Hann Guðmundur var sjálfur með okkur á litlu-jólunum. NON'NI: Já, en manstu ekki eftir því, að kann Guðmundur fór út áður en skóla- stjórinn byrjaði að lesa jólasöguna fyrir okkur? JONNI: Jú, hann sagðist halda, að hann liefði séð jólasvein út urn gluggann og ætlaði að fara að opna fyrir hon- um. NONNI: Nei, kjáninn þinn. Hann fór inn á kennarastofu og fór í jólasveins- föt. Svo kom hann aftur og lék jóla- svein fyrir okkur. JONNI: Þessu trúi ég nú ekki. NONNI: Þetla er nú samt alveg satt. JONNI: Nei, þú ert áreiðanlega að skrökva. NONNI: Þér er alveg óhætt að trúa þessu. Ég skal segja þér, að ég sá hann Guðmund, þegar hann kom á litlu-jól- in. Hann var með stóra tösku í hend- inni og flýtti sér með hana inn á kenn- arastofu. I henni voru jólasveinsföt- in. JONNI: Sáslu niður í töskuna? NONNI: Ne-ei. JONNI: Hvernig veizlu það þá? NONNI: Ég bara veit það. . . . Svo þekkti ég hann líka á röddinni. JONNI: Hvern þekklurðu? Hann Kerla- sníki? NONNI: Nei, hann Guðmund. JONNI: En skeggið, óx það á hann inni á kennarastofu? NONNI: Hann hefur auðvitað límt það á sig. JONNI: Heldurðu að ég trúi þessu? NONNI: Trúirðu virkilega að jólasvein- ar séu raunverulega til? JONNI: Já, auðvitað. Þegar hann afi minn var lítill sá hann einu sinni jóla- svein í hlöðunni og hún amma mín hefur oft séð jólasvein í fjósinu. NONNI: Þau hafa bara sagt þetta að gamni sínu. JONNI: Heldurðu að þau amma og afi séu að skrökva? KONNi: (Kemur inn í rauðum fötum, með mikið hvítt skegg og skrautlega prjónahúfu á höfði. Hann ber stóran poka á bakinu og leggur hann frá sér.) Heilir og sælir, heilir og sælir. Hér er jólasveinn kominn inn. Ofan af fjöllum, ofan af fjöllum arkað hef ég með pokann minn. NONNI og JONNI (Spretta á fætur.): Jólasveinn. KONNI: Já. Hvers vegna urðuð þið svona hissa? Varð ykkur bylt við? NONNI: Við áttum bara enga von á þér. KONNI: Áttuð þið ekki von á mér? Það þykir mér heldur skrýtið. Vitið þið ekki að jólin koma eftir nokkra daga og að við jólasveinarnir komum nú liver á fætur öðrum til byggða? Áttuð ekki von á mér. Hvers konar blessaðir heimskingjar eruð þið eig- inlega? JONNI: Ég átti nú reyndar von á þér. Þess vegna varð ég ekkert hissa þegar ég sá þig. En hann Nonni varð hissa. Hann trúir nefnilega ekki að jóla- sveinar séu til. KONNI: Trúir hann ekki að við jóla- sveinarnir séunt til? Þetta er gáfulegt VORIÐ 163

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.