Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 29

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 29
nokkuð aðgangshörð svo hann datt kylli- flatur í stíuna. Og ég tók margar myndir af sýningunni með flashi því farið var að rökkva. Er sýningunni var lokið ókum við heim á hótelið og fórum að sofa, og var kl. þá að ganga 11. Fimmtudagsmorguninn 10. júlí vakn- aði ég við það að bankað var á dyrnar. Eg þaut upp úr rúminu og til dyra. Þá var þetta Grímur kominn til að vekja mig og segja mér að pakka niður, því að nú var ferðinni heitið til baka til Kaup- mannahafnar. Eg flýtti mér í fötin og pakka niður. Eftir stutta stund kom Sveinn og hankaði á dyrnar og sagði mér að koma. Við gengum út að bílnum, settum töskurnar í skottið og héldum síðan af stað. Ókum við til ferjunnar og var rétt á takmörkunum að við náðum henni. Þetta var önnur ferja nokkuð minni. Ekki var eins margt fólk með þessari eins og hinni. Við fórum upp á sóldekk en ekki lagði ég nú samt í að kaupa gosdrykk þar. Eftir 50 mínútna siglingu eða svo vorum við komin til Knudshovet. Ferjan var ekki lengi að leggjast að hryggju, og fórum við niður og settumst inn í 'bílinn og að lítilli stundu liðinni ókum við aftur á sjá- lenskri grund. Sveinn ók sömu leiðina til baka, en þegar tiltölulega stutt var eftir til Kaupmannahafnar beygði hann út af aðalveginum og til Hróarskeldu, og þar stönzuðum við dálítið. Við geng- um til kirkjunnar og fórum inn í hana. Þetta er gríðarstór kirkja með stórum hvelfingum. Þarna voru margar kistur og grafir með jarðneskum leifum af fjöldamörgum Danakonungum. Ég tók bara eina mynd í kirkjunni, því að þegar Sveinn ætlaði að taka mynd kemur mað- ur og hnippir í hann og segir, að það megi ekki taka myndir í kirkjunni, en ég sá nú marga gera það samt. Er við vorum húin að skoða kirkjuna og ganga þarna um, héldum við af stað til Kaup- mannahafnar. Og að lítilli stund liðinni vorum við aftur komin til Borgarinnar við Sundið. Ráðgerðu Sveinn og Grím- ur að bezt væri að fara í dýragarðinn strax og við komum, og gerðum við það. Lagði svo Sveinn bílnum dálítinn spöl frá dýragarðinum. Gengum við svo þennan spöl. Er við komum inn í garð- inn lagði dálítinn þef heldur vondan á móti okkur. Þarna va rmargt að sjá, apa, ljón, tígrisdýr, gíraffa, zebrahesta, strúta, dádýr, vatnahesta, páfagaukíi, fíla, mörgæsir, seli, geitur, endur, skjald- bökur, hvítabirni, skógarbirni og margt fleira. Mest þótti mér gaman að sjá ap- ana, fílana, páfagaukana og vatnahest- ana. Einn apinn, sem ég sá, var með bíl- dekk og var að leika sér að því. Er við vorum búin að skoða þetta allt samati liéldum við til baka til bílsins. Síðan ók Sveinn á Missionshótelið Löngangstræde 27 og fengum við okkur herbergi og hvíldum okkur, á meðan Sveinn fór og skilaði hílnum. Síðan fórum við út og fengum okkur að borða, og skoðuðum okkur um í Kaupmannahöfn. Svo fórum við aftur heim á hótelið og hvíldum okkur. Síðan tókum við Sveinn, Jóhanna og ég leigu- bíl niður á Löngulínu til að sjá Haf- meyjuna og höfnina. Svo fórum við inn á stórt veitingahús á Löngulínu og feng- um okkur að borða. Síðan veifaði Sveinn í leigubíl og var ferðinni heitið VORIÐ 171

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.