Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 28
Hús H. C. Andersens í Odense,
H. C. Andersens. ViS fórum þangaö á
bílnum og gekk okkur dálítið erfiðlega
að finna staðinn en tókst samt að lok-
um! Þarna í „Fynske Landsbyen“ voru
gamlir sveitabæir danskir til sýnis svo
að við fórum að skoða þá. Inni í húsun-
um voru margir gamlir munir, gömul
mylla var þarna og margt fleira. Bæirnir
voru mjög gamlir, því að gólfið svign-
aði, þegar að ég gekk á því, og hélt eg
hálfpartinn, að bærinn myndi hrynja of-
an á mig þá og þegar.
Síðan gengum við að útileiksviðinu
sem er í hálfhring og settumst. Ekki lík'
aði Sveini að sitja á döggvuðu grasinu,
svo að hann fór og fékk sér púða handa
okkur til að sitja á. AS lítilli stundu lið-
inni hófst sýningin, en það var ævintýr-
ið Svínahirðirinn sem var sýnt. Þarna
var svínastía og lítill kofi og stutt fra
stór konungshöll. Mest þótti mér garn-
an að sjá konunginn, því hann var svo
einkennilegur í göngulaginu, hann hopp'
aði einhvernveginn áfram. Líka var gam-
an að sjá svínahirðinn, þegar hann vai
að gefa svínunum, því að svínin voiU
170 VORIÐ