Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 12

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 12
dagar. Þeir voru þó ótrúlega margir í Sóley. Það voru ekki aðeins hinar kirkjulegu hátíðir. Það voru blátt áfram hátíðir, sem lífið lagði þeim til. Þegar komið var heim, voru ferming- argjafirnar teknar upp. Þær voru hvorki margar né verðmætar, en þær báru með sér einfaldleika hins hversdagslega lífs. Ingunn amma hafði sent eina gjöf. Henni fylgdi gleði og birta. Já hér átti heima hið einfalda, hversdagslega líf með sólblik á sjónum, víðum og fögr- um og tíbrá inn til landsins. Svona ha- tíðisdaga getur náttúran ein haldið. Og dagarnir liðu og urðu að árum. Systkin- in í Sóley uxu einn góðan veðurdag, eða öllu heldur smátt og smátt upp úr bernsku sinni og bernskudraumum. En þau hlökkuðu samt alltaf til morgun- dagsins. Það eru einkenni hinna sönnu náttúrubarna. Lífið sjálft á að vera eilíft tilhlökkunar efni með öllum sínum æv- intýrum — og raunveruleik. Sögulok. ■ -■ ý: ■■ ? NORRÆNA FÉLAGIÐ 50 ÁRA Á þessu óri var3 Norræna félagið 50 óra og voru af því tilefni hótiðahöld víða ó Norður- löndum og meðal annars í Gautaborg. Þessi mynd er fró hótíðahöldum Norræna félagsins þar og eru ó myndinni fulltrúar fró öllum Norðurlöndunum, og meðal onnars fró íslandi. Litlo stúlkan fremst ó myndinni ó íslcnzka búningnum, er fró Rvik og heitir Sólveig Þorsteinsdóttir. 154 VORIÐ

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.