Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 43

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 43
WeUar. Þegar þeir hittust á flugvellin- um þetta kvöld og tókust í hendur, sagði Tony eftir langa þögn: „Roger, ég trúi því varla, að þetta geti verið raunveruleiki.“ Saga þessara bræðra er vissulega ósennileg á margan hátt. En sagan hófst 28. maí 1938 á Binghampton sjúkrahús- inu. Klukkan nákvæmlega 20.31 og 20.36 hjálpaði dr. Vincent Maddi þess- Um tveimur tvíburabræðrum lil að kom- ast í heiminn. Móðir þeirra var ítölsk, en faðirinn var Gyðingur. Þessi atburð- ur, sem annars var svo gleðilegur í eðli sínu olli þó, eins og á stóð, miklum áhyggjum. Hjónin áttu þegar tvö börn fyrir, en vikukaup föðurins var aðeins 15 dalir, og móðirin sagði dr. Maddi frá því grátandi, að þau hjón gætu ekki séð fyrir þessum drengj um háðum. Það vaeri bókstaflega ómögulegt að fæða og klæða tvö börn í viðbót. Doktor Maddi átti nágranna, sem hafði þráð það lengi að geta tekið að sér kj örbarn. Hann sagði nú þessum ná- granna sínum, sem var kona, frá tvíhur- Unum. En hún var ekki lengur ung og ekki heldur heilsuhraust, svo að hún O'eysti sér ekki til að taka þá báða að sér. Hún varð því að velja á milli þeirra. Og með þessum hætti komst drengurinn 1 hennar umsjá. Það var sá minni af tvíburunum og þannig komst þessi litli drengur inn í líf þessara hjóna, herra Jóseps Milas og konu hans. Hann var skírður Antony Jósep. Ejölskyldan bjó í lítilli í'búð uppi yfir smáverzlun, sem hún átti í ítalska hverf- mu í Binghampton. Tony litli gekk á smum tíma í kaþólskan skóla og gerð- ist kórdrengur í Mariæ Himmelfarts- kirkju og tók burtfararpróf frá miðskóla Binghampton. Þegar hann var 12 ára gamall, varp- aði eitt af börnum hverfisins þessari setningu framan í hann, sem særði hann mikið: „Þú ert ekki ítali eins og við hin. Hinn rétti faðir þinn er Gyðingur!“ Þelta kvöld sagði Paulina Milasi drengnum alla söguna. Hún hóf sögu sína með því að segja honum frá hinum réttu foreldrum hans og fjárhagslegum erfiðleikum þeirra. Hún lauk frásögn sinni með því að sýna honum skjöl þau, sem sýndu, að hann væri kjörbarn þeirra. Hún sagði honum frá tvíbura- bróður hans, en doktor Maddi áliti, að hann hefði dáið, þegar hann var ung- barn. Hún hélt, að það væri Tony fyrir beztu, að hann tryði því einnig. í raun og veru hafði drengurinn ekki haft mikla möguleika á að lifa lengi. Þegar hann var þriggja mánaða gamall, hafði sveitin komið honum fyr- ir á barnaheimili. En þar hafði hann brennzt illa, þegar eldur hafði komizt í sængurföt hans. Er hann hafði legið í sjúkrahúsi nálega eitt ár, var hann aft- ur fluttur á barnaheimili. Árið 1942 heyrði hjúkrunarkonan Mildred Brooks sagt frá þessu veik- byggða og óhamingjusama barni. Hún tók drenginn að sér og Roger litli, eins og liann hét ,átti það fyrir sér að búa hjá henni og manni hennar, Jules Brooks í Syrakuse í ríkinu New York. En hjónin ættleiddu drenginn aldrei formlega. Einu ári síðar skildu hjónin. Hún fluttist til Miami, ásamt móður VORIÐ 185

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.