Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 27

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 27
Ef það væri nú svona hérna á íslandi væri ekki amalegt að hjóla. Eftir svo sem tvcggja klukkutíma akstur vorum við komin til Knudshovet, en þaðan sigldi ferjan. Sveinn stanzaði og keypti miða með ferjunni. Síðan ók Sveinn niður að ferjunni og stanzaði. Svo fórum við út úr bílnum og spókuðum okkur í sólskin- inu. Þarna var samankomið fullt af bæði fólki og bílum, sem ætluðu með ferj- Unni. Milli bílanna óku rafmagnssölu- vagnar og fólk bauð bílstjórunum að þvo rúðurnar hjá þeim. Loks fór bílalestin sem við vorum í að mjakast af stað, svo við flýttum okkur inn í bílinn og ókum inn í lestina á ferjunni. Síðan læstum við kilnum, og fórum upp á þilfar og svo upp á sóldekk. Veðrið var gott logn og sólskin svo ég skellti mér úr peysunni sem ég var í. Svo var flautað þrisvar sinnum til brottfar- ar og ferjan, sem var mjög stór, fór að nijakast af stað. Þarna uppi á sóldekk- inu var margt fólk. Af því að heitt var 1 veðri, varð ég fljótt þyrstur og fékk rnér gosdrykk. Þegar ég fór að drekka hann fannst mér hann svo vondur, að ég gat ekki drukkið hann. Ég tek það fram <ð ég hef ekki drukkið hann áður. Svo að ég henti honum í klósettið á hótelinu 1 Odense. Eftir svo sem 50 mínútna sigl- lngu lagðist ferjan að bryggju í Odense Við vorum komin niður í bílalestina og lnn í bílinn nokkru áður en lagzt var að andi. Er búið var að opna hlerana é hnjunni, fóru bílarnir að mjakasl af stað og að lítilli stundu liðinni ókum við tl fjónskri grund. Við ókum beinustu 'eið á Missionshótelið Ansgar, Öster Stationsvej 32, Odense, og fengum okk ur herbergi og þar hvíldum við okkur. Er við vorum búin að hvíla okkur í hálf- tíma eða svo fórum við út að borða. Síð- an héldum við af stað til að skoða okk- ur um. Fyrst gengum við að H. C. And- erssens safninu. -— Við genguin inn og Sveinn borgaði! Þarna var margt frá bernsku skáldsins, myndir af foreldr- um hans, höggmyndir af honum, og síð- ast en ekki sízt allar bækurnar lians á mörgum, mörgum tungumálum. Bækurn- ar þöktu marga veggi og sá ég þarna ævintýri á íslenzku. Þarna voru líka gler- styttur af persónum úr mörgum af ævin- týrum skáldsins og svo bækur með ævin- týrum eins litlar og frímerki. Þarna í húsinu var hvelfing og voru málaðar myndir úr lífi skáldsins á veggina. Líka sá ég hattöskju og ferðatösku skáldsins. Svo keypti ég mér póstkort af skáldinu og Sveinn gaf okkur minjagrip um það, að við hefðum komið í húsið. Því næst gengum við út úr húsinu, og gengum við svo eftir fallegum göt- um og svo stönzuðum við hjá kirkjunni í Odense og tókum myndir af henni. Síð- an gengum við að H. C. Andersens garð- inum og var þar mjög fallegt. Þarna í garðinum var stór stytta af skáldinu og höfðu blessaðir fuglarnir dritað óspart á höfuðið á þessum heimsfræga manni. Er við vorum búin að taka myndir í garðinum fórum við og gengum áfram. Við skoðuðum mikið þarna í Odense og sáum margt fallegt. Er við vorum orðin þreytt á labbinu fórum við heim á hótel- ið og hvíldum okkur í klukkutíma. Síð- an fórum við út aftur og var nú ferðinni heitið í Finnske Landsbyen, en þar átti að sýna á útileiksviði eitt af ævintýrum VORIÐ 169

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.