Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 33

Vorið - 01.12.1969, Blaðsíða 33
er fyrst á síðari árum, að Sigaunar hafa fengið tækifæri til að sýna, að þeir eru ólikir einstaklingar alveg eins og þið. Menn liafa ímyndað sér, að Sigaunar séu eitthvað sérstakir, en það er ekki rétt. En hverju eiga menn að trúa, þegar það stendur í alfræðibókum, að Sigaunum sé flökkueðlið í blóð borið, og að þeir séu þekktir fyrir að stela hænsnum og berj- ast með hnífum. Alla svona vitleysu þarf að afmá. Annars er Svíþjóð forustuland í málum þjóðflokks okkar, og það er að- eins hér og í nokkrum austur-evrópisk- Urn löndum sem Sigaunar geta fengið nokkra menntun. .... Og hvað segja svo yfirvöldin. Innanríkisráðherrann í Svíþjóð er Rune B. Johanson og hefur verið það í 10 ár. Undir hans ráðuneyti fellur allt um húsnæðismál og innflutning útlend- inga. Eva: Fá allir útlendingar, sem þess óska, að koma hingað til Svíþjóðar? Ráðherrann: Útlendingur, sem ætlar að setjast hér að, verður fyrst að úlvega sér vinnu. Og til þess að fá atvinnu, verða menn auðvitað að kunna ein- hverja iðn, og að jiað sé laust starf inn- an þeirrar greinar. Þar að auki koma hingað pólitískir flóttamenn, sem eru ofsóttir í heima- landi sínu. Handa þeirn reynum við að fá vinnu á sérstakan hátt. Eva: Er nokkur munur gerður á Sigaunum og öðrum, sem vilja setjast hér að? Ráðherrann: Nei, innflytjendum er tekið á sama hátt frá hvaða landi, sem þeir koma, hvaða trúarbrögð, sem þeir hafa, eða af hvaða þjóðflokki sem vera Rætt við Rune B. Johonson, róðherra. VORIÐ 175

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.