Vorið - 01.12.1969, Síða 14
— Hvers vegna förum við ekki í
kirkju, pabbi?
— Ég veit ekki, góði minn. Við ger-
um það nú stundum t. d. á hátíðum.
Þarna gnæfði kirkjan fögur og tign-
arleg. Hljómar kirkjuklukkunnar óm-
uðu yfir bæinn. Mér þóttu þeir hátíð-
legir.
—• Hver býr í kirkjunni, pabbi?
— Það býr enginn þar, góði minn.
— Sveinn gamli sagði mér um dag-
inn, að Guð 'byggi í kirkjunni.
— Já, það má kannski segja það. En
Guð er ósýnilegur eins og þú veizt. Ég
átti við að enginn maður byggi þar.
— Hvers vegna er hringt í kirkjun-
um, pab'bi?
— Ég geri ráð fyrir, að það sé gert
til að kalla á fólkið.
— 'Eigum við ekki að fara í kirkjuna
næst þegar að hringt verður?
— Það getur vel verið, Atli minn. En
þá verðum við að fá mömmu og Stínu
með okkur.
Og enn héldu feðgarnir áfram úr einni
götu í aðra. Stórt hús gnæfði fyrir fram-
an þá. Það var nýtt og fagurlega skreytt
með ljósaskilti. Svo skrautlegt og veg-
legt hús hafði Atli aldrei séð áður.
— Nei, sko, pabbi, þetta fallega hús?
Býr forsetinn þar?
— Nei, Atli minn, þarna búa engir.
Þetta er banki.
— Banki? Búa engir þar? Hvað er
gerl í þessu stóra húsi?
— Þar eru geymdir peningar og lán-
aðir út.
— Fórstu þangað með skildingana
úr aurabauknum mínum? Eru þeir
geymdir þar?
— Já, ég lagði þá inn í sparisjóðs-
bókina þína. Og svo geymum við bókina
heima til að geta séð, hvað þú átt mikla
peninga í bankanum.
— Hvers vegna þarf svona stórt hús
fyrir peninga? Því býr ekki fólk þarna?
— Atli minn, bankar eru ríkar stofn-
anir og 'byggja stór hús handa sér. En
þeir lána líka stundum peninga, þegar
aðrir þurfa að byggja.
— Pabbi fékkstu lán úr bankanum,
þegar þú byggðir húsið okkar?
— Nei, það var nú ekki. Þá voru eng-
ir peningar til í bankanum.
— Engir peningar í þessu stóra húsi.
Þeir geymdu þó skildingana mína, og
hefðu getað lánað þá til að byggja hús.
— Nei, þá voru engir peningar þar.
Svo héldu feðgarnir áfram, störðu a
trén í görðunum og hlustuðu á fugla-
sönginn.
Skömmu síðar mættu þeir manni 1
gráum íötum, sem gekk við krókstaf.
— Sæll og blessaður, sagði maður-
inn. —— Þú ert að nota góða veðrið og
hefur soninn með þér.
— Já, við tókum okkur morgun-
göngu. Þeir segja, þarna í útvarpinu, að
það sé svo heilsusamlegt.
— Og hvað hefur þú séð, ungi mað-
ur.
— Ég sá kirkjuna og heyrði hring-
inguna. En ég sá engan fara inn. Ég er
viss um að Guði hefur leiðst það. Við
ætlum til kirkju næsta sunnudag °S
mamma og Stína líka.
— Hvað sástu fleira? Þú tekur eftir.
— Ég sá stórt hús, sem geymir skild-
ingana mína,
156 VORIÐ