Vorið - 01.12.1969, Side 24
Jóhann Tryggvi Sigurðsson:
Á slóðum
ævintýraskóldsins
FERÐASAGA
Það var þann 20. júní aS ég skrapp
aS sækja póstinn. Og í póstinum var bréf
til mín. Ég opnaSi bréfiS og sá þá aS
þetta var bréf frá Hannesi J. Magnús-
syni, ritstjóra barnablaSsins Vorsins, og
tilkynnti hann mér, aS ég hefSi hlotið
fyrstu verSlaun í ritgerSasamkeppni
Flugfélags Islands og Vorsins. ÞaS er
flugfar meS GULLAXA, þotu F. í., til
Kaupmannahafnar og þaSan til Odense,
fæSingarstaSar ævintýraskáldsins heims-
fræga, Hans Christians Andersens. —
Eg varS steinhissa á þessu, því hálf-
partinn var ég búinn aS gleyma ritgerS-
inni minni. Ég hljóp út til systkina
minna og sagSi þeim tíSindin. Pabbi
minn og mamma voru ekki heima, en
þegar þau komu heim fór ég út til þeirra
og sagSi þeim fréttirnar. Þau urSu mjög
hissa og sögSu aS þessu hefSu þau ekki
búist viS.
Ég hlakkaSi mikiS til ferSarinnar og
var ráSgert aS ég færi suSur til Reykja-
víkur tveimur dögum áSur en lagt væri
upp í ferSina. Og sunnudaginn 6. júh
fór ég inn á Akureyrarflugvöll og vai'
ferSinni heitiS til Reykjavíkur. Flugvéb
in var ekki komin og settumst viS í stóla
inni í flugstöSinni og biSum. Og þegar
klukkan var tuttugu mínútur gengin 1
fjögur lenti „Blikfaxi“ mjúklega á velh
inum. Eftir 15 mínútur var búiS aS af-
ferma vélina og koma farangrinum íyi'ir
í henni, síSan voru farþegar kallaSir ut
í hana. Ég flýtti mér aS kveSja mönuuu
mína og systkini, og labbaSi síSan út >
vélina. Ég valdi mér sæti út viS glugg®
og spennti beltiS. Er búiS var aS hita
hreyflana fór „Blikfaxi“ aS mjakast af
staS og svo ók hann út á endann á veH"
inum. Þar sneri hann viS og ók svo a*
fram á ofsaferS, og aS lítilli stundu li®'
inni sveif „BIikfaxi“ upp í loftin blá.
Þetta var nú í fyrsta skipti, sem ég kotn
upp í flugvél og fannst mér þetta dálíti®
skríliS aS svífa svona uppi í loftiS. Og
er ég leit út um gluggann, var flugvélin
komin hátt á loft og stefndi til Reykja-
166 VORIÐ