Vorið - 01.12.1969, Page 30
aftur í Tívólí. ViS hlustuðum svolítið á
hljómsveitina leika, en síðan gengum
við lengra. Svo fórum við Jóhanna og
ég í rafmagnsbíl og stýrði ég. Ekki gekk
mér nú vel að stýra, því bíllinn fór svo
hart, og lenti ég í mörgum árekstrum.
Svo fórum við líka Jóhanna og ég í bát,
og stýrði ég honum líka. Var það mjög
gaman að sigla á litlu vatninu innan uin
marga aðra báta. Svo reyndi ég líka að
skjóta í mark, en ekki hitti ég nú neilt.
Er við vorum búin að skemmta okkur
vel í Tívolí fórum við heim á hótelið og
sofnuðum vært.
Föstudagsmorguninn 11. júlí, vaknaði
ég kl. að verða átta. Ég flýlti mér að
klæða mig og byrjaði að pakka niður,
því að ferðinni var nú heitið aftur heim
til Islands, um hádegið. Svo var bankað
á hurðina hjá mér og var þetta Grímur
sem endranær kominn til að vekja mig.
Svo komu Sveinn og Jóhanna fram úr
herbergjunum sínum, svo að við fórum
út og ætluðum að fara í búðir. Við kom-
um í stóra verzlun, Magasin De Neur,
sem er margar hæðir, þar keypti ég mér
módel og fleira. Er við vorum búin að
verzla vorum við búin að týna Grími.
Við gengum heim að hótelinu, en þar
stendur Grímur og með honum ungur
íslendingur, Guðni minni mig, að hann
hafi heitið. Rélt við hótelið var krá
Kongen af Island held ég að hún hafi
heitið, fórum við þangað inn og feng-
um okkur gosdrykk. Síðan flýttum við
okkur heim á hótelið og pökkuðum nið-
ur á mettíma. Ég og Jóhanna kvöddum
Grím, en hann varð eftir í Kaupmanna-
höfn. Síðan fórum við inn í bílinn hans
Guðna, en liann ók okkur til Kastrup-
flugvallar. Þar fengum við okkur að
drekka og gaf Sveinn okkur líka minja-
grip. Þarna kom ungur íslendingur, en
ekki man ég hvað hann heitir, og varð
hann samferða okkur á leiðinni heim.
Loks kvöddum við Svein með söknuði,
því að hann ætlaði að verða eftir og reka
erindi _Flugfélagsins. Betri fararstjóra
hefði ég ekki hugsað mér að hafa. Eftir
smástund vorum við Jóhanna og ég koin-
in út í Gullfaxa, og að lítilli stundu lið-
inni var Gullfaxi kominn á loft og ég
kvaddi með söknuði Borgina fögru við
Sundið, Kaupmannahöfn.
Að lokum vil ég þakka Flugfélagi ls-
Iands og barnablaðinu Vorinu fyrir að
ég gat farið þessa ferð. Sérstaklega
þakka ég Sveini Sæmundssyni og Grírni
Engilberts fyrir frábæra fararstjórn.
Betri íerðafélaga get ég ekki hugsað mér
að hafa.
Jóhann Tryggvi Sigurðsson,
Búlandi, Eyjafirði.
Mý b.irnaitiíka
Þann 5. nóvember sl. stofnaði Eiríkur
Sigurðsson barnastúku á Skorrastað í
Norðfirði með 22 félögum. Björn Stef-
ánsson, erindreki, hafði undirbúið stofn-
un stúkunnar.
Stúkan hlaut nafnið Sumarrós, en fyi'-
ir aldarfjórðungi starfaði þar slúka með
því nafni. Gæzlumaður stúkunnar er
frú Herdís Guðjónsdóttir, Skuggahlíð.
Eins og áður er sagt starfaði þarna
barnastúkan Sumarrós nr. 99 áður fyrr.
Ilún var stofnuð á Skorrastað 21. apríl
1929 af Sigdór V. Brekkan. Hún starf-
aði til 1945. Gæzlumaður hennar var
Jón Bjarnason, bóndi á Skorrastað.
172 VORIÐ