Vorið - 01.12.1969, Page 31
HVERNIG ER AÐ VERA SIGAUNI?
SIGAUNADRENGUR SVARAR NOKKRUM SPURNINGUM
Sænskt barnablað fékk tvo unglinga
til að ræða við Sigaunadreng um þjóð-
flokk hans og innanríkisráðherrann
sænska um aðstöðu þessa fólks í þjóð-
félaginu. Sigaunadrengurinn, sem rætt
er við heitir Hans Calddaras. Hann hef-
ur alltaf átt heima í Svíþjóð, en fékk
ekki að fara í skóla fyrr en hann var 10
ára. Nú stundar hann hljómlistarnám. En
honum hefur ekki tekist að fá neinn
fjárstyrk til námsins. Ríkið vill styrkja
hann til að verða póstmaður. Móðir
hans er sænsk, en fékk aldrei að ganga
í skóla, en lærði sjálf að lesa. Nú er hún
orðin 60 ára og er í skóla til að læra að
skrifa.
Unglirigarnir sem spyrja eru Eva
Myrdal, 12 ára frá Gautaborg, og
Richard Berg, 13 ára frá Stokkhólmi.
Fyrst tala þau við Sigaunadrenginn.
Ricliard: Frá hvaða landi koma Sig-
aunar?
Hans: Upphaflega komu þeir frá Ind-
landi. Þaðan dreifðust þeir viða um
lönd og hingað til Svíþjóðar komu þeir
um 1500.
Richard: Er það rétt, að Sigaunar séu
flökkuþjóð?
Hans: Nei, það er rangt. Þeir hafa
verið Jwingaðir til að ferðast um heim-
*n, og víða voru þeir hrottreknir. Ég
bjó sjálfur í vagni og tjöldum, þar til
ég var 12 ára — af því að við höfðum
ekki hetri bústað — og oft kom það
fyrir, að þegar við komum á nýjan stað,
að lögreglan kom og flutti okkur hurt.
Richard: Vilja Sigaunar heldur búa
í íbúðum en í vögnum?
Hans: Já, áreiðanlega. Það óska engir
eftir því, að búa í vögnum, þegar kalt er
á nóttunni og þröngt til að geta þvegið
sér.
Richard: Finnst þér, að allir Sigaun-
ar, sem vilja flytja inn í Svíþjóð eigi
að fá það?
Hans: Já, þeir sem eiga erfitt, finnst
mér að ætlu að fá að koma hér. Þeir sem
hafa verið reknir land úr landi. . . .
Iíugsið ykkur, þeir eiga hvergi heima.
Richard: Hvernig er með skólagöngu
barnanna, þegar fjölskyldan er alltaf á
ferðalagi?
Hans: Það er erfitt. Nokkrar vikur í
skóla hér, og nokkra mánuði í skóla ann-
ars staðar. . . . Og svo á ferðalagi þess
á milli.
Richard: Eru önnur börn vond við
Sigaunabörn í skólunum?
Hans: Þegar ég var í skóla var ég
hafður út undan. Enginn vildi vera með
mér.
Eva: 1 mínum skóla eru Sigaunabörn
VORIÐ 173