Vorið - 01.12.1969, Page 32

Vorið - 01.12.1969, Page 32
Rætt við Sigaunadrenginn. og þau eru alltaf ein út af fyrir sig við morgunverðinn. Enginn vill sitja hjá þeim. Richard: Hvernig er að vera Sigauni? Hans: Það er í engu frábrugðið því að vera Svíi. Sigaunar eru eins og ann- að fólk, en það er farið öðruvísi með þá. Venjulega er fólk gott í viðmóti við okk- ur, til dæmis þegar um veikindi er að ræða, en stundum líka drambsamir og vondir. Eva: Er það erfiðara fyrir Sigauna en aðra að fá vinnu í Svíþjóð? Richard: Já, af því að fæstir Sigaun- ar hafa fengið nokkra menntun. Ef þeir hefðu fasta bústaði, þá gætu börnin gengið í skóla eins og önnur börn og þá haft sömu aðstöðu til starfa síðar. Eva: Hvað álítur þú að eigi að gera fyrir Sigauna í framtíðinni? Richard: Þeir ættu að fá sömu rétt- indi og aðrir þjóðfélagsþegnar. Það eru í kringum 1000 Sigaunar hér á landi, en af þeim eru uni 100, sem hafa enga fasta bústaði, en verða að búa í tjöld- um og vögnum í útjaðri samfélagsins. Allir Sigaunar ættu að fá að læra þá iðn, sem þeir óska. Eva: En ég hef lesið í blöðum, að sums staðar vilji fólk ekki búa í sama húsi og Sigaunar? Richard: Það er rétt. Fólk ætli að fá að vita að Sigaunar eru eins og annað fólk og þannig á að umgangast þá. Það 174 VORIÐ

x

Vorið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.