Vorið - 01.12.1969, Qupperneq 34
skal. Vilji þeir koma hingað og vinna og
það er hægt að fá hana, eru allir út-
lendingar jafnréttháir.
Af skiljanlegum ástæðum er þetta dá-
lítið sérstakt með Sigaunana. Þeir eru
ekki vanir okkar venjum — þeir eru
flökkufólk — og þegar þeir koma hvorki
sem flóttamenn eða til að fá vinnu er
erfitt að taka á móti þeim inn í samfé-
lagið.
Eva: En hvernig er það með þá Si-
gauna, sem reyna að komast hingað, en
er neitað um það?
Ráðherrann: Oft hafa Sigaunar enga
von um atvinnu, og þeir koma ekki allt-
af í þeim tilgangi. Ekki aðeins þeir, held-
ur einnig allir aðrir, sem koma ólöglega
inn í landið eiga á hættu að verða settir
til hliðar. Pólitískir flóttamenn, þar á
móti og það gildir líka um Sigauna, fá
hæli hér.
Eva: Af hverju kemur það, að svo
margir Sigaunar hér búa í vögnum og
tjöldum?
Ráðherrann: Sumir þeirra hafa aldrei
reynt til að fá annað húsnæði. í öðru
lagi hafa sveitafélögin ekki gert nóg til
að hjálpa þeim til að komast yfir betra
húsnæði. Sveitafélögin fá styrk frá rík-
inu til að koma upp húsum, en við getum
ekki skipað þeim að gera það. Þau á-
kveða það sjálf. Það tekur alltaf langan
tíma að koma húsnæðismálum í lag.
(E. Sig. þýddi) •
ORÐSENDING TIL LESENDA
Blaðið vill minna á, að uppsögn er bundin við áramót.
Það er ekki heiðarlegt, að taka fyrst við tveimur blöðum
orðalaust, án þess að endursenda þau, láta svo blaðið
kosta upp á að senda póstkröfu og endursenda hana svo
til baka.
Sendið blaðinu sögur eða frásagnir. Vorinu er kærkom-
ið að birta efni frá lesendum sínum.
Vegna fyrirspurna skal þess getið, að hægt er að fá
Vorið í Bókaverdun Sigfúsar Eymundssonar og Bókabuð
Safamýrar f Reykjavík.
Svo óskar blaðið öllum lesendum sínum gleðilegra jóla
og nýárs og þakkar samskiptin á liðna árinu.
Útgefendur.
176 VORIÐ